Oddsstaðabraut
Oddstaðabraut var gata sem lá frá Kirkjubæjarbraut og að Oddsstöðum en fór undir hraun á fyrstu dögum í gosinu 1973. Við Oddstaðabraut var meirihluti íbúanna fólk sem átti ættir að rekja í austurbæinn, eða „girðinguna“ eins og bæirnir austan til á Heimaey voru jafnan nefndir. Húsin við Oddstaðabraut voru öll byggð á árunum 1960 til 1972 og var byggingu sumra þeirra ekki lokið þegar gaus. Sumir íbúanna sneru aftur til Eyja en margir settust að uppi á landi. Þessi hús voru við Oddstaðabraut:
- Hús Sigurðar Sigurðssonar (Didda) frá Svanhól og Margrétar Sigurðardóttur. - Oddstaðabraut 10
- Hús Sigurgeirs Björgvinssonar (Siffa múrara) og Jónu Pétursdóttur frá Kirkjubæ. - Oddstaðabraut 12
- Hús Steinars Jóhannssonar, sonar Jóhanns Pálssonar og Óskar Guðjónsdóttur frá Oddsstöðum.
Heimildir
- Guðjón Ármann Eyjólfsson. Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík: Ísafoldaprentsmiðja, 1973.