Guðbjörg Solveig Hjálmarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. september 2024 kl. 09:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. september 2024 kl. 09:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðbjörg Solveig Hjálmarsdóttir''', húsfreyja, starfsmaður á Sjúkrahúsinu fæddist 20. apríl 1944 á Ísafirði.<br> Foreldrar hennar Hjálmar Kristinn Helgason, sjómaður, verslunarmaður, f. 16. júní 1920 í Fagurhól, d. 22. nóvember 1993, og kona hans Elín Katrín Sumarliðadóttir, húsfreyja, ræstitæknir, f. 21. september 1923, d. 25. nóvember 1997. Börn Elínar og Hjálm...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðbjörg Solveig Hjálmarsdóttir, húsfreyja, starfsmaður á Sjúkrahúsinu fæddist 20. apríl 1944 á Ísafirði.
Foreldrar hennar Hjálmar Kristinn Helgason, sjómaður, verslunarmaður, f. 16. júní 1920 í Fagurhól, d. 22. nóvember 1993, og kona hans Elín Katrín Sumarliðadóttir, húsfreyja, ræstitæknir, f. 21. september 1923, d. 25. nóvember 1997.

Börn Elínar og Hjálmars Kristins:
1. Guðbjörg Solveig Hjálmarsdóttir húsfreyja í Eyjum, starfsmaður á Sjúkrahúsinu, f. 20. apríl 1944. Maður hennar var Baldur Aðalsteinsson sjómaður.
2. Helgi Hjálmarsson húsasmiður í Eyjum, f. 10. janúar 1952. Kona hans er Sesselja Geirlaug Pálsdóttir frá Lögbergi, húsfreyja, skólaliði, vinnur einnig við ræstingar, f. 9. ágúst 1952.
3. Auður Elín Hjálmarsdóttir húsfreyja á Eyrarbakka, leikskólakennari, f. 25. maí 1955. Maður hennar er Rúnar Eiríksson fangavörður, f. 29. nóvember 1950.

Þau Baldur giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Goðasteini, við Hólagötu 22, í Varmahlíð og á Þrúðvangi.

I. Maður Guðbjargar var Baldur Aðalsteinsson, sjómaður, f. 7. júlí 1943, d. 17. janúar 2024.
Börn þeirra:
Hjálmar Elís Baldursson, f. 30. október 1966.
Aðalstein Baldursson, f. 5. apríl 1968.
Þórína Baldursdóttir, f. 19. ágúst 1970, d. 3. janúar 2022.
Soffía Baldursdóttir, f. 31. júlí 1974.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.