Sólveig Friðgeirsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júlí 2024 kl. 11:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júlí 2024 kl. 11:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sólveig Friðgeirsdóttir''', frá Hvíld við Faxastíg 14, húsfreyja fæddist 6. júní 1953.<br> Foreldrar hennar voru Friðgeir Guðmundsson sjómaður, trésmiður, f. 21. júlí 2016 í Rekavík bak Látur, d. 16. júní 2001 í hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi, og kona hans Elínborg Dagmar Sigurðardóttir frá Efra-Hvoli, húsfreyja, f. 8. september 1915 í Dvergasteini, síðast í Kó...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sólveig Friðgeirsdóttir, frá Hvíld við Faxastíg 14, húsfreyja fæddist 6. júní 1953.
Foreldrar hennar voru Friðgeir Guðmundsson sjómaður, trésmiður, f. 21. júlí 2016 í Rekavík bak Látur, d. 16. júní 2001 í hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi, og kona hans Elínborg Dagmar Sigurðardóttir frá Efra-Hvoli, húsfreyja, f. 8. september 1915 í Dvergasteini, síðast í Kópavogi, d. 9. júlí 1991.

Börn Elínborgar Dagmarar og Friðgeirs:
1. Svava Guðríður Friðgeirsdóttir húsfreyja, f. 4. júlí 1940 á Efra-Hvoli, d. 9. janúar 2017. Maður hennar er Sævald Pálsson frá Þingholti.
2. Guðlaugur Kjartan Friðgeirsson bifvélavirkjameistari, f. 1. desember 1942 á Skjaldbreið. Kona hans er Þorgerður Sigríður Þorgeirsdóttir frá Sælundi.
3. Drengur, f. 14. nóvember 1945 í Hvíld, d. 24. nóvember 1945.
4. Sigríður Þyrí Friðgeirsdóttir húsfreyja, f. 30. maí 1947 í Hvíld. Maður hennar er Lárus Guðberg Lárusson.
5. Sigrún Þóranna Friðgeirsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 17. maí 1948 í Hvíld. Fyrri maður hennar var Pétur Ólafsson Welker. Síðari maður hennar er Halldór Þór Guðmundsson.
6. Elínborg Fríða Friðgeirsdóttir húsfreyja í Danmörku, f. 4. apríl 1952 í Hvíld. Maður hennar er Kristján Valgeirsson.
7. Sólveig Friðgeirsdóttir húsfreyja á Laugarvatni, f. 6. júní 1953 í Hvíld. Maður hennar er Böðvar Ingi Benjamínsson.
8. Hrefna Friðgeirsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 26. maí 1956 í Hvíld. Maður hennar er Jónas Hafsteinn Jónasson.

Þau Böðvar giftu sig 1977, eignuðust fjögur börn. Þau búa á Laugarvatni.

I. Maður Sólveigar, (17. desember 1977), er Böðvar Ingi Benjamínsson, f. 10. september 1954. Foreldrar hans Benjamín Halldórsson, f. 27. júní 1923, d. 28. nóvember 2001, og Anna Bergljót Böðvarsdóttir, f. 19. júní 1917, d. 2. desember 1989.
Börn þeirra:
1. Eiríkur Ingi Böðvarsson, f. 21. júlí 1976 í Rvk.
2. Benjamín Ingi Böðvarsson, f. 8. desember 1978 í Rvk.
3. Böðvar Ingi Böðvarsson, f. 7. júní 1983 í Rvk.
4. Anna Bergljót Böðvarsdóttir, f. 11. janúar 1990 í Rvk.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.