Eygló Björnsdóttir (Reykholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júlí 2024 kl. 12:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júlí 2024 kl. 12:06 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Eygló Björnsdóttir fæddist 19. október 1951 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hennar voru Björn Kristjánsson og Guðbjörg Þ. Gunnlaugsdóttir frá Gjábakka-vestri. Eygló er gift Friðriki Jóhannssyni og eiga þau þrjú börn, Gunnlaugu Elísabetu, Björn og Jóhann. Eygló ólst upp á Urðavegi 15 (Reykholti eldra) og Bakkastíg 23 en eftir það bjó hún með manni sínum og börnum í Bræðratungu við Heimagötu og á Strembugötu.

Eygló lauk kennaraprófi 1971 og starfaði sem kennari í Barnaskóla Vestmannaeyja í fjölda mörg ár. Árið 2000 flutti Eygló og fjölskylda til Akureyrar og þar starfar Eygló sem dósent við kennaradeild Háskólans á Akureyri.