Hersir Sigurgeirsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júlí 2024 kl. 13:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2024 kl. 13:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Hersir Sigurgeirsson''', stærðfræðingur, doktor í stærðfræði, prófessor í Háskóla Íslands fæddist 16. janúar 1972.<br> Foreldrar hans Sigurgeir Jónsson, vélstjóri, stýrimaður, matsveinn, kennari, æskulýðsfulltrúi, kaupmaður, f. 26. júní 1942, og kona hans Katrín Lovísa Magnúsdóttir, húsfreyja, kennari, kaupmaður, f. 29. mars 1944 að Ketilsstöðum í Hvammssveit, Dal. Börn Katrínar Lovísu og...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hersir Sigurgeirsson, stærðfræðingur, doktor í stærðfræði, prófessor í Háskóla Íslands fæddist 16. janúar 1972.
Foreldrar hans Sigurgeir Jónsson, vélstjóri, stýrimaður, matsveinn, kennari, æskulýðsfulltrúi, kaupmaður, f. 26. júní 1942, og kona hans Katrín Lovísa Magnúsdóttir, húsfreyja, kennari, kaupmaður, f. 29. mars 1944 að Ketilsstöðum í Hvammssveit, Dal.

Börn Katrínar Lovísu og Sigurgeirs eru:
1. Jarl Sigurgeirsson stýrimaður og tónlistarkennari í Vestmannaeyjum, f. 3. nóv. 1967. Kona hans er Sigurveig Steinarsdóttir matráður.
2. Dís Sigurgeirsdóttir lögfræðingur, bjó um skeið í Brüssel, f. 2. ágúst 1970. Maður hennar er Jónas Jóhannsson lögfræðingur, hérðasdómari.
3. Hersir Sigurgeirsson stærðfræðingur með doktorspróf í stærðfræði, prófessor í Háskóla Íslands, f. 16. janúar 1972. Kona hans er Guðný Guðmundsdóttir matvælafræðingur.
4. Dögg Lára Sigurgeirsdóttir kennari í Reykjavík, f. 15. okt. 1974. Maður hennar Björgvin Ívar Guðbrandsson kennari.
Dóttir Sigurgeirs fyrir hjónaband er
5. Fanney Sigurgeirsdóttir bókasafnsfræðingur í Kópavogi, f. 1. mars 1965. Maður hennar er Þórir Ólafur Skúlason tölvunarfræðingur.

Þau Guðný giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Rvk.

I. Kona Hersis er Guðný Guðmundsdóttir, matvælafræðingur, f. 30. júní 1967. Foreldrar hennar Guðmundur Óskar Ívarsson, húsasmíðameistari, f. 14. mars 1930, og kona hans Guðfinna Óskarsdóttir, húsfreyja, verkakona, f. 6. mars 1938, d. 2. mars 2011.
Börn þeirra:
1. Sesar Hersisson, f. 29. október 1997.
2. Katrín Hersisdóttir, f. 17. apríl 2001.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.