Sigríður Guðrún Árnadóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júní 2024 kl. 17:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júní 2024 kl. 17:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sigríður Guðrún Árnadóttir''', frá Helli við Vestmannabraut 13b, húsfreyja á Akureyri fæddist 6. febrúar 1945 og lést 14. maí 2024 á Akureyri.<br> Foreldrar hennar voru Árni Hannesson frá Hvoli við Urðaveg, vélstjóri, skipstjóri, f. 10. desember 1921, d. 4. júní 1999, og kona hans Laufey ''Hulda'' Sæmundsdóttir frá Draumbæ, húsfreyja...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Guðrún Árnadóttir, frá Helli við Vestmannabraut 13b, húsfreyja á Akureyri fæddist 6. febrúar 1945 og lést 14. maí 2024 á Akureyri.
Foreldrar hennar voru Árni Hannesson frá Hvoli við Urðaveg, vélstjóri, skipstjóri, f. 10. desember 1921, d. 4. júní 1999, og kona hans Laufey Hulda Sæmundsdóttir frá Draumbæ, húsfreyja, f. 29. október 1920, d. 15. september 2002.

Börn Huldu og Árna:
1. Sæmundur Árnason vélstjóri, f. 6. júlí 1943 í Helli, d. 5. mars 2011.
2. Sigríður Guðrún Árnadóttir húsfreyja á Akureyri, f. 6. febrúar 1945 í Helli, d. 14. maí 2024.
3. Ársæll Helgi Árnason húsasmiður í Eyjum, f. 24. maí 1949 á Hvoli.
4. Kolbrún Árnadóttir húsfreyja, sjúkraliði í Kópavogi, f. 21. nóvember 1953 að Brimhólabraut 12.
5. Sunna Árnadóttir húsfreyja á Akureyri, f. 10. janúar 1955 að Brimhólabraut 12.
6. Helena Árnadóttir húsfreyja í Eyjum, f. 23. desember 1960 að Brimhólabraut 12.
7. Viðar Árnason sjómaður, verkamaður í Reykjavík, f. 12. febrúar 1962, d. 9. október 2022.

Sigríður var með foreldrum sínum í æsku. Hún flutti til Akureyrar um tvítugt.
Þau Frímann giftu sig 1965, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu á Akureyri.
Frímann lést 2016 og Sigríður 2024.

I. Maður Sigríðar Guðrúnar, (24. desember 1965), var Frímann Frímannsson, setjari, síðan meðferðarfulltrúi, f. 9. júní 1944, d. 4. september 2016. Foreldrar hans voru Frímann Guðmundsson, frá Gunnólfsvík við Bakkaflóa, N.-Múl., deildarstjóri hjá KEA, f. 24. ágúst 1917, d. 15. apríl 2000, og kona hans Soffía Guðmundsdóttir, frá Syðsta-Mó í Fljótum, Skagaf., húsfreyja, f. 23. nóvember 1918, d. 31. janúar 2011.
Börn þeirra:
1. Ásdís Guðrún Frímannsdóttir, f. 11. nóvember 1964. Maður hennar Marc Carlsson.
2. Frímann Frímannsson, f. 14. júní 1966. Kona hans Ester Sigurðardóttir.
3. Soffía Frímannsdóttir, f. 27. júlí 1973. Maður hennar Elías Kristjánsson.
4. Harpa Frímannsdóttir, f. 13. janúar 1976. Maður hennar Davíð Scheving.
5. Hulda Frímannsdóttir, f. 14. janúar 1983. maður hennar Skúli Eyjólfsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.