Guðfinna Georgsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. júní 2024 kl. 16:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. júní 2024 kl. 16:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðfinna Georgsdóttir''' frá Vegbergi við Skólaveg 32, húsfreyja fæddist þar 1. apríl 1950.<br> Foreldrar hennar voru Georg Skæringsson frá Rauðafelli u. Eyjafjöllum, verkamaður, smiður, húsvörður, f. þar 30. ágúst 1915, d. 16. mars 1988, og kona hans Sigurbára Júlía Sigurðardóttir frá Háarima í Þykkvabæ, Rang., húsfreyja, ræstitæknir, f. þar 31. júlí...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðfinna Georgsdóttir frá Vegbergi við Skólaveg 32, húsfreyja fæddist þar 1. apríl 1950.
Foreldrar hennar voru Georg Skæringsson frá Rauðafelli u. Eyjafjöllum, verkamaður, smiður, húsvörður, f. þar 30. ágúst 1915, d. 16. mars 1988, og kona hans Sigurbára Júlía Sigurðardóttir frá Háarima í Þykkvabæ, Rang., húsfreyja, ræstitæknir, f. þar 31. júlí 1921, d. 3. september 2017.

Börn Sigurbáru og Georgs:
1. Kristín Georgsdóttir húsfreyja, umboðsmaður, f. 14. nóvember 1939. Maður hennar Ólafur Oddur Sveinbjörnsson, látinn.
2. Sigurður Georgsson skipstjóri, f. 1. mars 1941. Kona hans Guðný Fríða Einarsdóttir.
3. Þráinn Einarsson skrifstofustjóri, f. 20. nóvember 1942. Kona hans Svava Sigríður Jónsdóttir. Hann varð kjörsonur Einars Skæringssonar og Guðríðar Konráðsdóttur.
4. Skæringur Georgsson húsasmiður, skrifstofumaður, f. 2. maí 1944. Kona hans Sigrún Óskarsdóttir.
5. Vignir Georgsson stúdent, f. 6. maí 1946, d. 25. apríl 1968.
6. Guðfinna Georgsdóttir húsfreyja, f. 1. apríl 1950. Fyrrum maður hennar Óskar Kristinsson.
7. Sigmar Georgsson verslunarstjóri, f. 1. apríl 1950. Kona hans Edda Angantýsdóttir.
8. Ingimar Heiðar Georgsson bifreiðastjóri, f. 12. maí 1960. Kona hans Hjördís Inga Arnarsdóttir.

Þau Óskar giftu sig 1972, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu við Suðurveg 13 við Gosið 1973, síðar Birkihlíð 6. Þau skildu.
Guðfinna býr í Litlagerði 4.

I. Maður Guðfinnu, (11. nóvember 1972, skildu), er Óskar Kristinsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 7. ágúst 1944.
Börn þeirra:
1. Kristinn Óskarsson, vélstjóri, verkstjóri í Selvogi, f. 24. október 1970. Kona hans Kristrún Agnarsdóttir frá Selfossi.
2. Sigurbára Óskarsdóttir, húsfreyja, f. 8. maí 1975. Maður hennar Guðni Hannesson frá Stokkseyri.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Guðfinna.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.