Ólafur Oddur Sveinbjörnsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ólafur Oddur Sveinbjörnsson.

Ólafur Oddur Sveinbjörnsson vélstjóri, múrarameistari fæddist 5. júlí 1938 í Snæfelli við Hvítingaveg 8 og lést 9. nóvember 2003.
Foreldrar hans voru Sveinbjörn Guðlaugsson frá Odda, verslunarstjóri, f. 4. febrúar 1914, d. 6. maí 1994, og kona hans Ólöf Oddný Ólafsdóttir frá Snæfelli við Hvítingaveg 8, húsfreyja, f. 29. september 1914, d. 16. janúar 1986.

Börn Oddnýjar og Sveinbjörns:
1. Halla Sveinbjörnsdóttir, f. 16. janúar 1936 í Ásnesi, d. 2. desember 1943.
2. Ólafur Oddur Sveinbjörnsson vélstjóri, múrarameistari, tónlistarmaður, f. 5. júlí 1938 í Árdal, d. 9. nóvember 2003.
3. Valgeir Sveinbjörnsson málari, tónlistarmaður, f. 16. október 1941 í Odda.
4. Huginn Sveinbjörnsson málarameistari, tónlistarmaður, f. 16. október 1941 í Odda, d. 16. maí 2015.
5. Halla Sveinbjörnsdóttir, f. 2. nóvember 1946 á Hvítingavegi 8.

Ólafur var með foreldrum sínum í æsku.
Hann varð vélstjóri 1956, nam múrverk hjá Hjörleifi Guðnasyni, lauk sveinsprófi 1966 og síðan fékk hann meistararéttindi.
Ólafur var til sjós til 1963, og vann við múraraiðnina til 2001.
Hann söng í Kirkjukórnum og var félagi í Harmónikkufélagi Vestmannaeyja.
Þau Kristín giftu sig 1958, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Skólavegi 32 1960, síðar á Illugagötu 73.

I. Kona Ólafs Odds, (15. nóvember 1958), er Kristín Georgsdóttir húsfreyja, umboðsmaður, f. 14. nóvember 1939.
Börn þeirra:
1. Georg Óskar Ólafsson málarameistari, f. 12. janúar 1957. Kona hans Hera Dís Karlsdóttir.
2. Oddný Bára Ólafsdóttir verslunarkona, f. 23. október 1960. Maður hennar Gunnar Kristjánsson.
3. Vignir Ólafsson tónlistarkennari, málari, f. 14. júní 1964. Fyrrum kona hans Elísabet Arietta. Kona hans Ásgerður Hrönn Sveinsdóttir.
4. Þórir Ólafsson sölu- og þjónusturfulltrúi í Svíþjóð, f. 21. júní 1966. Fyrrum kona hans Guðmunda Jóna Hlífarsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.