Magnús Oddsson (Kirkjubæ)
Magnús Oddsson á Kirkjubæ fæddist 24. október 1822, drukknaði í apríl 1867.
Foreldrar hans voru Oddur Ögmundsson, f. um 1787 og k.h. Ingveldur Magnúsdóttir, f. 1796.
Magnús var skráður sjómaður á Kirkjubæ 1845, hafnsögumaður og bóndi var hann. Hann var skipherra á þilskipinu Helgu, sem fórst með allri áhöfn, 6 manns, í apríl 1867. Skipherrar voru þeir kallaðir, sem voru formenn á þilskipum.
Maki I, (21. jan. 1842): Guðrún Höskuldsdóttir, f. 1801.
Börn: Andvana barn, f. 28. des. 1864.
Maki II, (8. okt. 1861): Margrét Magnúsdóttir, f. 1831.
Börn: Magnúsína, f. 29. ágúst 1867.
Heimildir
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Þorsteinn Þ. Víglundsson: Sína á Vesturhúsum. Blik, 1965.