Úrsúla Margrét Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. október 2023 kl. 20:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. október 2023 kl. 20:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Úrsúla Margrét Guðmundsson“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ursula Marie Helene Quade Guðmundsson frá Stettin í Þýskalandi, húsfreyja fæddist 17. janúar 1931.
Foreldrar hennar voru Richard Quade og Helena Quade.

Ursula kom til Íslands í atvinnuleit.
Þau Jónas giftu sig 1950, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu við Hásteinsveg 8 og við Illugagötu 11, fluttu til Reykjavíkur í Gosinu 1973.
Jónas lést 1998.

I. Maður Úrsúlu, (25. nóvember 1950), var Jónas Guðmundsson frá Hásteinsvegi 8, byggingameistari, bankastarfsmaður, f. 1. desember 1928, d. 14. mars 1998.
Börn þeirra:
1. Sigurbjörg Helena Jónasdóttir, f. 10. mars 1951. Maður hennar Halldór Almarsson.
2. Ómar Jónasson, f. 19. júní 1953 að Hásteinsvegi 8, d. 16. maí 2014. Kona hans Kristín Björgvinsdóttir.
3. Richard Guðmundur Jónasson, f. 7. janúar 1956 á Hásteinsvegi 8. Sambúðarkona hans Guðrún Egilsdóttir.
4. Jónas Ewald Jónasson, f. 2. október 1962 að Illugagötu 11, d. 1. mars 1987. Kona hans Guðrún Jóhannsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.