Þorsteinn Loftsson
Þorsteinn Loftsson bifreiðastjóri fæddist 9. febrúar 1904 í Vík í Mýrdal og lést 24. mars 1959.
Foreldrar hans voru Loftur Þorsteinsson trésmiður, málari í Vík, f. 11. mars 1875 í Reynisdal í Mýrdal, d. 19. febrúar 1917, og kona hans Guðlaug Kristín Vigfúsdóttir húsfreyja, f. 3. maí 1874 í Valdakoti í Sandvíkurhreppi, Árn., d. 9. október 1946.
Börn Guðlaugar og Lofts:
1. Gunnlaugur Loftsson verslunarmaður, kaupmaður, f. 22. apríl 1901, d. 15. apríl 1975.
2. Þorsteinn Loftsson bifreiðastjóri, f. 9. febrúar 1904, d. 24. mars 1959.
3. Daníel Loftsson verkamaður, f. 23. febrúar 1914, d. 9. ágúst 1943.
Þorsteinn var með foreldrum sínum í Vík, en faðir hans lést, er Þorsteinn var tæpra þrettán ára. Hann var með móður sinni í Vík og flutti með henni til Eyja 1924.
Hann var bílstjóri í Eyjum. Þeir Óskar þorsteinsson áttu um skeið saman tvo bíla, sem þeir gerðu út. Hann bjó með móður sinni og Daníel bróður sínum í Nýja Bergholti við Vestmannabraut 67 1930, á Borgarhóli við Kirkjuveg 11 1940, bjó á Sandi við Strandveg 63 1949. Hann flutti til Reykjavíkur, var bílstjóri þar.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
- Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.