Jóhanna Þorsteinsdóttir (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. apríl 2023 kl. 18:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. apríl 2023 kl. 18:58 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|200px|''Jóhanna Þorsteinsdóttir. '''Jóhanna Þorsteinsdóttir''' frá Eystri-Vesturhúsum, húsfreyja, verkakona fæddist 25. mars 1930 í Efri-Vatnahjáleigu í A.-Landeyjum og lést 21. nóvember 2000.<br> Foreldrar hennar voru Þorsteinn Ólafsson á Vesturhúsum, verkamaður, f. 24. júní 1896 í Dufþalsholti í Hvolhreppi, d. 13. apríl 1967, og kona hans Gísln...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Jóhanna Þorsteinsdóttir.

Jóhanna Þorsteinsdóttir frá Eystri-Vesturhúsum, húsfreyja, verkakona fæddist 25. mars 1930 í Efri-Vatnahjáleigu í A.-Landeyjum og lést 21. nóvember 2000.
Foreldrar hennar voru Þorsteinn Ólafsson á Vesturhúsum, verkamaður, f. 24. júní 1896 í Dufþalsholti í Hvolhreppi, d. 13. apríl 1967, og kona hans Gíslný Jóhannsdóttir frá Efri-Vatnahjáleigu, húsfreyja, f. þar 3. júlí 1911, d. 14. janúar 1993 í Reykjavík.

Börn Gíslnýju og Þorsteins:
1. Jóhanna húsfreyja að Hilmisgötu 1, síðar iðnverkakona í Innri Njarðvík, f. 25. marz 1930, d. 21. nóvember 2000, gift Jóhannesi P. Sigmarssyni múrara og vélstjóra.
2. Tryggvi kennari í Arendal í Noregi, f. 13. maí 1931, kvæntur Inger Thorsteinsson, fædd Thorvaldsen
3. Ólafía verkakona í Reykjavík, f. 9. nóvember 1933, gift Guðna Þ. Ágústssyni rafeindavirkja. Hún ólst upp hjá föðurbróður sínum Magnúsi Ólafssyni í Hvolhreppi í Rangárvallasýslu.
4. Trausti vélvirki í Kópavogi, f. 14. febr. 1935, kvæntur Önnu Finnsdóttur skrifstofumanni.
5. Halla skólastarfsmaður á Akranesi, f. 7. maí 1936, gift Þórði Þórðarsyni netagerðarmanni.
6. Lilja iðnverkakona í Reykjavík, f. 28. sept. 1937, gift Inga S. Sigmarssyni verzlunarmanni, en hann er bróðir Jóhannesar manns Jóhönnu systur Lilju.
7. Reynir húsgagnabólstrari í Kópavogi, f. 8. nóvember 1938, kvæntur Grétu Jansen skrifstofumanni.
8. Sólveig verzlunarmaður í Reykjavík, f. 26. febrúar 1940, gift Inga B. Guðjónssyni húsasmið.
9. Birgir húsgagnasmiður í Reykjavík, f. 9. marz 1942, kvæntur Sigrúnu Halldórsdóttur kennara.
10. Guðrún húsfreyja í Seattle í Bandaríkjunum, f. 17. maí 1943, fyrr gift Magnúsi Sigurðssyni verkamanni, síðar Richard L. Campbell tölvufræðingi.
11. Jónína iðnverkakona í Kópavegi, f. 23. september 1944, gift Guðjóni Þorbergssyni iðnverkamanni.
12. Smári iðnverkamaður í Reykjavík, f. 18. marz 1946, ókvæntur.
13. Svanur rafeindavirki í Kópavogi, f. 2. október 1947, kvæntur Svanhildi Svansdóttur læknaritara.
14. Sigurvin sjómaður í Eyjum, f. 5. janúar 1950, d. 10. júlí 1980, fórst með v.b. Skuld.
15. Vilborg bóndi á Sléttabóli á Skeiðum, f. 22. nóvember 1951, gift Jóhannesi Eggertssyni bónda.
16. Sigurbjörg húsfreyja á Fáskrúðsfirði, f. 6. febrúar 1953, gift Jóhannesi Ragnarssyni verkstjóra.

Jóhanna var með foreldrum sínum, fluti með þeim til Eyja 1934.
Hún var verkakona í Eyjum, síðar iðnverkakona í Ytri-Njarðvík.
Þau Jóhannes giftu sig 1953, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu við Kirkjubæjarbraut 4 og Hilmisgötu 1, fluttu til Ytri-Njarðvíkur og bjuggu þar, síðast á Borgarvegi 20b.

I. Maður Jóhönnu, (29. ágúst 1953), var Jóhannes Pétur Sigmarsson vélstjóri, múrari, f. 9. september 1929, d. 18. desember 2008.
Börn þeirra:
1. Helga Jóhannesdóttir Carrougher sjókona á Stöðvarfirði, f. 14. desember 1950 á Vesturhúsum. Fyrrum maður hennar Guðjón Auðbergsson.
2. Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir atvinnurekandi í Mosfellsbæ, f. 6. desember 1953 á Kirkjubæjarbraut 4.
3. Sigmar Jóhannesson rafeindavirki á Akranesi, f. 5. júlí 1956 á Kirkjubæjarbraut 4. Kona hans Lára Dóra Oddsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vélstjóratal 1911-1972. Óskar Ingimarsson. Reykjavík. Vélstjórafélag Íslands.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.