Halla Þorsteinsdóttir (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Halla Þorsteinsdóttir frá Eystri-Vesturhúsum, húsfreyja, skólastarfsmaður fæddist þar 7. maí 1936.
Foreldrar hennar voru Þorsteinn Ólafsson verkamaður, f. 24. júní 1896 í Dufþaksholti í Hvolhreppi, d. 13. apríl 1967, og kona hans Gíslný Jóhannsdóttir húsfreyja, f. 3. júlí 1911 í Efri-Vatnahjáleigu í A.-Landeyjum, d. 14. janúar 1993.

Börn Gíslnýjar og Þorsteins:
1. Jóhanna húsfreyja að Hilmisgötu 1, síðar iðnverkakona í Innri Njarðvík, f. 25. marz 1930, d. 21. nóvember 2000, gift Jóhannesi P. Sigmarssyni múrara og vélstjóra.
2. Tryggvi kennari í Arendal í Noregi, f. 13. maí 1931, kvæntur Inger Thorsteinsson, fædd Thorvaldsen,
3. Ólafía verkakona í Reykjavík, f. 9. nóvember 1933, gift Guðna Þ. Ágústssyni rafeindavirkja. Hún ólst upp hjá föðurbróður sínum Magnúsi Ólafssyni í Hvolhreppi í Rangárvallasýslu,
4. Trausti vélvirki í Kópavogi, f. 14. febr. 1935, kvæntur Önnu Finnsdóttur skrifstofumanni,
5. Halla skólastarfsmaður á Akranesi, f. 7. maí 1936, gift Þórði Þórðarsyni netagerðarmanni,
6. Lilja iðnverkakona í Reykjavík, f. 28. sept. 1937, gift Inga S. Sigmarssyni verzlunarmanni, en hann er bróðir Jóhannesar manns Jóhönnu systur Lilju,
7. Reynir húsgagnabólstrari í Kópavogi, f. 8. nóvember 1938, kvæntur Grétu Jansen skrifstofumanni,
8. Sólveig verzlunarmaður í Reykjavík, f. 26. febrúar 1940, gift Inga B. Guðjónssyni húsasmið,
9. Birgir húsgagnasmiður í Reykjavík, f. 9. marz 1942, kvæntur Sigrúnu Halldórsdóttur kennara,
10. Guðrún húsfreyja í Seattle í Bandaríkjunum, f. 17. maí 1943, fyrr gift Magnúsi Sigurðssyni verkamanni, síðar Richard L. Campbell tölvufræðingi,
11. Jónína iðnverkakona í Kópavegi, f. 23. september 1944, gift Guðjóni Þorbergssyni iðnverkamanni,
12. Smári iðnverkamaður í Reykjavík, f. 18. marz 1946, ókvæntur,
13. Svanur rafeindavirki í Kópavogi, f. 2. október 1947, kvæntur Svanhildi Svansdóttur læknaritara,
14. Sigurvin sjómaður í Eyjum, f. 5. janúar 1950, d. 10. júlí 1980, fórst með v.b. Skuld.
15. Vilborg bóndi á Sléttabóli á Skeiðum, f. 22. nóvember 1951, gift Jóhannesi Eggertssyni bónda,
16. Sigurbjörg húsfreyja, f. 6. febrúar 1953, gift Jóhannesi Ragnarssyni vélstjóra, verkstjóra, innflytjanda.

Halla var með foreldrum sínum.
Hún vann ýmis störf, var m.a. kaupakona á Skáney í Reykholtsdal.
Þau Þórður giftu sig 1959, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu á Akranesi.
Þórður lést 2008.
Halla býr á Akranesi.

I. Maður Höllu, (9. maí 1959), var Þórður Þórðarson frá Akranesi, sjómaður, verkamaður, netagerðarmaður, f. þar 5. október 1933, d. 9. mars 2008. Foreldrar hans voru Þórður Sigurðsson skipstjóri, f. 30. janúar 1901, d. 30. apríl 1965, og kona hans Anna Ingvarsdóttir húsfreyja, f. 1. mars 1910, d. 28. desember 1971.
Börn þeirra:
1. Anna Þórðardóttir viðskiptafræðingur, löggiltur endurskoðandi, f. 21. september 1960. Maður hennar Kristján Sveinsson sagnfræðingur.
2. Gíslný Bára Þórðardóttir þroskaþjálfi, f. 25. nóvember 1961. Barnsfaðir hennar Einar Ólafsson tölvunarfræðingur. Maður hennar Halldór Júlíusson trésmiður.
3. Þóra Þórðardóttir stærðfræðikennari, f. 24. júlí 1964. Barnsfaðir hennar Þröstur Reynisson matreiðslumaður. Maður hennar Helgi Helgason rafiðnfræðingur.
4. Rósa Þórðardóttir snyrtifræðingur, f. 24. nóvember 1966. Maður hennar Sigurður Hauksson rafvirki.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.