Elísabet Valgerður Ingvarsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. febrúar 2023 kl. 18:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. febrúar 2023 kl. 18:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Elísabet Valgerður Ingvarsdóttir''' frá Akureyri, húsfreyja fæddist 8. apríl 1898 í Bárðarkoti í Grenivíkursókn í S.-Þing. og lést 22. mars 1976.<br> Foreldrar hennar voru Ingvar Magnús Ingvarsson bóndi á Bárðartjörn í Grenivíkursókn, S.-Þing., síðar trésmiður á Akureyri og í Reykjavík, f. 17. apríl 1871, d. 1. maí 1950 og kona hans Guðrún Rósa Magnúsdóttir húsfreyja, f. 22. janúar 1866, d. 1. nóvember 1968. Elísabet var með for...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Elísabet Valgerður Ingvarsdóttir frá Akureyri, húsfreyja fæddist 8. apríl 1898 í Bárðarkoti í Grenivíkursókn í S.-Þing. og lést 22. mars 1976.
Foreldrar hennar voru Ingvar Magnús Ingvarsson bóndi á Bárðartjörn í Grenivíkursókn, S.-Þing., síðar trésmiður á Akureyri og í Reykjavík, f. 17. apríl 1871, d. 1. maí 1950 og kona hans Guðrún Rósa Magnúsdóttir húsfreyja, f. 22. janúar 1866, d. 1. nóvember 1968.

Elísabet var með foreldrum sínum, á Bárðartjörn 1901, á Akureyri 1910.
Þau Hallgrímur giftu sig 1921, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Eyjum 1921-1931, í fyrstu á Kirkjuhól við Bessastíg 4, byggðu húsið við Kirkjuveg 86 og bjuggu þar. Þau fluttu til Reykjavíkur og bjuggu þar í Einarsnesi 27 í Skerjafirði.
Elísabet lést 1976 og Hallgrímur 1991.

I. Maður Elísabetar, (20. október 1921), var Hallgrímur Jónasson frá Fremrikotum í Skagafirði, kennari, rithöfundur, farastjóri, f. 30. október 1894, d. 24. október 1991.
Börn þeirra:
1. Ingvar Hallgrímsson fiskifræðingur, f. 23. janúar 1923, d. 19. september 2017.
2. Jónas Hallgrímsson bifreiðastjóri í Reykjavík, starfsmaður Olíufélagsins Esso, f. 28. júní 1928, d. 25. júní 2017.
3. Þórir Hallgrímsson skólastjóri, f. 7. ágúst 1936.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Kennaratal á Íslandi. Ólafur Þ. Kristjánsson og fleiri. Prentsmiðjan Oddi 1958-1988.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.