Bergmann Júlíusson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. nóvember 2022 kl. 19:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. nóvember 2022 kl. 19:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jón ''Bergmann'' Júlíusson''' frá Uppsölum-efri við Faxastíg 7, trémíðameistari fæddist 5. september 1939 á Siglufirði. <br> Foreldrar hans voru Jóhann ''Júlíus'' Einarsson, f. 15. maí 1901, d. 29. september 1941, og Júlíana ''Ingibjörg'' Guðmundsdóttir, f. 25. júní 1912, d. 6. apríl 1999.<br> Fósturforeldrar hans voru Finnur Sigmundsson bifreiðastjóri, verkamaður í Uppsalir|Uppsölum-efri við Fa...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Bergmann Júlíusson frá Uppsölum-efri við Faxastíg 7, trémíðameistari fæddist 5. september 1939 á Siglufirði.
Foreldrar hans voru Jóhann Júlíus Einarsson, f. 15. maí 1901, d. 29. september 1941, og Júlíana Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 25. júní 1912, d. 6. apríl 1999.
Fósturforeldrar hans voru Finnur Sigmundsson bifreiðastjóri, verkamaður í Uppsölum-efri við Faxastíg 7, f. 29. janúar 1889, d. 25. ágúst 1966, og kona hans og föðursystir Bergmanns Þórunn Soffía Einarsdóttir húsfreyja, f. 17. apríl 1898, d. 20. nóvember 1970.

Bergmann kom til Þórunnar og Finns 1941 og ólst upp hjá þeim.
Hnn lærði húsasmíði hjá Ólafi Runólfssyni og Valtý Snæbjörnssyni í Nýja-Kompaníinu.
Hann vann við iðn sína, lengi hjá Þorvaldi og Einari, fyrirtæki Þorvaldar Vigfússonar og Einars M. Erlendssonar. Hann vann í Eyjum við uppbygginguna eftir Gosið.
Þau Eygló giftu sig 1961, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Uppsölum og á Brekkugötu 7. Þau fluttu til Keflavíkur í Gosinu 1973, bjuggu á Nónvörðu 5, síðar Stekkjargötu 83.

I. Kona Bergmanns, (7. október 1961), er Eygló Björg Ólafsdóttir, f. 22. júní 1939 á Siglufirði.
Börn þeirra:
1. Edda Bergmannsdóttir húsfreyja, f. 10. september 1957. Maður hennar Jón Þorkelsson.
2. Júlía Ólöf Bergmannsdóttir húsfreyja, verkakona, f. 10. júní 1963, d. 25. janúar 2006. Maður hennar Jóhann Freyr Ragnarsson.
3. Finnur Bergmannsson tölvunarfræðingur, f. 20. maí 1966.
4. Friðrik Bergmannsson verkamaður, sundlaugarvörður, f. 4. júlí 1968. Kona hans Ingibjörg Steingrímsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.