Páll Pálmason (verkstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. nóvember 2021 kl. 21:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. nóvember 2021 kl. 21:37 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðrún og Páll.

Páll Pálmason knattspyrnukappi, stýrimaður, verkstjóri fæddist 11. ágúst 1945 á Hólagötu 18 og lést 6. nóvember 2021.
Foreldrar hans voru Pálmi Sigurðsson frá Skjaldbreið, skipstjóri, f. þar 21. júlí 1920, d. 25. nóvember 1911, og kona hans Stefanía Marinósdóttir húsfreyja, f. 25. júní 1924 í Laugardal, d. 19. september 2016.

Börn Stefaníu og Pálma:
1. Guðbjörg Pálmadóttir húsfreyja, f. 23. desember 1941 á Faxastíg 25.
2. Sigmar Pálmason, f. 23. mars 1943 á Faxastíg 25.
3. Páll Pálmason, f. 11. ágúst 1945 á Skjaldbreið.
4. Hafþór Pálmason, f. 22. febrúar 1954 á Hólagötu 18, d. 10. september 1977.

Páll nam í Stýrimannaskólanum í Eyjum 1966-1967.
Hann var stýrimaður m.a á Halkion og síðar með föður sínum á Björgu í siglingum á Bretland.
Hann var knattspyrnumaður, í meistaraliði Eyjamanna og um skeið í landsliðinu.
Páll var verkstjóri í Vinnslustöðinni frá 1970 til starfsloka.
Hann eignaðist barn með Eygló 1964.
Þau Guðrún Kristín giftu sig 1969, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í fyrstu á Brimhólabraut 31 og fram að Gosi, en síðan á Dverghamri 7.

I. Barnsmóðir Páls er Eygló Kjartansdóttir frá Birkihlíð 20, f. 23. júní 1946.
Barn þeirra:
1. Stefanía Pálsdóttir, f. 9. janúar 1964.

II. Kona Páls, (4. apríl 1969), er Guðrún Kristín Guðjónsdóttir frá Gvendarhúsi, húsfreyja, skrifstofumaður, f. þar 21. júní 1946.
Börn þeirra:
2. Hörður Pálsson bifvélavirki, f. 25. febrúar 1966. Kona hans er Kolbrún Matthíasdóttir.
3. Grétar Víðir Pálsson rafmagns- og tölvuverkfræðingur í Reykjavík, f. 15. september 1975. Kona hans er Lilja Logadóttir frá Hellu á Rangárvöllum.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.