Hulda Fanný Ásbjörnsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. október 2021 kl. 13:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. október 2021 kl. 13:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Hulda Fanný Ásbjörnsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hulda Fanney Ásbjörnsdóttir húsfreyja í Belgíu fæddist 22. janúar 1915 á Jaðri við Vestmannabraut 6 og lést 1969.
Foreldrar hennar voru Ásbjörn Pálsson frá Akranesi, sjómaður, f. 2. september 1880, d. 14. október 1952, og kona hans Rannveig Ólafsdóttir frá Miðbýli í Akraneshreppi, húsfreyja, f. 27. apríl 1884 í Háuhjáleigu þar, d. 19. júlí 1941.

Börn Rannveigar og Ásbjörns:
1. Kári Coghill Ásbjörnsson þjónn, f. 2. ágúst 1908, d. 11. september 1932, ókv.
2. Úlla Jóhanna Dollý Ásbjörnsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4. júní 1910 í Stakkahlíð, d. 25. febrúar 1968. Maður hennar var Tyrfingur Þórðarson vélstjóri.
3. Hlöðver Ólafur Ásbjörnsson, f. 31. maí 1912 í Götu, d. 10. maí 1913.
4. Sigríður Pálma Ásbjörnsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 28. september 1913 á Gjábakka, d. 4. júlí 1986. Maður hennar var Jóhannes Guðmundsson vélstjóri.
5. Hulda Fanný Ásbjörnsdóttir húsfreyja í Belgíu, f. 22. janúar 1915 á Jaðri, d. 1969. Maður hennar var Lucane Eduware siglingafræðingur.
6. Ásbjörn Ragnar Ásbjörnsson, f. 19. janúar 1917 á Bifröst, fórst á stríðsárunum, ókv.
7. Hlöðver Óliver Ásbjörnsson stýrimaður á Dettifossi, f. 21. maí 1918 á Bjargi í Bakkafirði, d. 21. febrúar 1945, ókv.
8. Ólafur Hafsteinn Ásbjörnsson húsgagnabólstrari í Kaupmannahöfn, f. 22. júlí 1920 í Reykjavík. Kona hans var Guðný Hreiðarsdóttir.
Barn Ásbjörns og Helgu Árnadóttur:
9. Þorsteinn Arnberg Guðni Ásbjörnsson verkstjóri, yfirprentari í Reykjavík, f. 21. ágúst 1904 í Reykjavík, d. 13. júlí 1971. Kona hans Sæunn Jófríður Jóhannesdóttir.

Hulda var með foreldrum sínum í æsku, í Eyjum til 1917 og á Bakkafirði 1917-1919, síðan í Reykjavík.
Hún giftist Lucane bjó í Belgíu.
Hulda lést 1969.

I. Maður Huldu var Lucane Eduware siglingafræðingur, f. um 1914.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.