Sigríður Pálma Ásbjörnsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Pálma Ásbjörnsdóttir húsfreyja í Reykjavík, fæddist 28. september 1913 á Gjábakka við Bakkastíg og lést 4. júlí 1986.
Foreldrar hennar voru Ásbjörn Pálsson frá Akranesi, sjómaður, f. 2. september 1880, d. 14. október 1952, og kona hans Rannveig Ólafsdóttir frá Miðbýli í Akraneshreppi, húsfreyja, f. 27. apríl 1884 í Háuhjáleigu þar, d. 19. júlí 1941.

Börn Rannveigar og Ásbjörns:
1. Kári Coghill Ásbjörnsson þjónn, f. 2. ágúst 1908, d. 11. september 1932, ókv.
2. Úlla Jóhanna Dollý Ásbjörnsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4. júní 1910 í Stakkahlíð, d. 25. febrúar 1968. Maður hennar var Tyrfingur Þórðarson vélstjóri.
3. Hlöðver Ólafur Ásbjörnsson, f. 31. maí 1912 í Götu, d. 10. maí 1913.
4. Sigríður Pálma Ásbjörnsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 28. september 1913 á Gjábakka, d. 4. júlí 1986. Maður hennar var Jóhannes Guðmundsson vélstjóri.
5. Hulda Fanný Ásbjörnsdóttir húsfreyja í Belgíu, f. 22. janúar 1915 á Jaðri, d. 1969. Maður hennar var Lucane Eduware siglingafræðingur.
6. Ásbjörn Ragnar Ásbjörnsson, f. 19. janúar 1917 á Bifröst, fórst á stríðsárunum, ókv.
7. Hlöðver Óliver Ásbjörnsson stýrimaður á Dettifossi, f. 21. maí 1918 á Bjargi í Bakkafirði, d. 21. febrúar 1945, ókv.
8. Ólafur Hafsteinn Ásbjörnsson húsgagnabólstrari í Kaupmannahöfn, f. 22. júlí 1920 í Reykjavík. Kona hans var Guðný Hreiðarsdóttir.
Barn Ásbjörns og Helgu Árnadóttur:
9. Þorsteinn Arnberg Guðni Ásbjörnsson verkstjóri, yfirprentari í Reykjavík, f. 21. ágúst 1904 í Reykjavík, d. 13. júlí 1971. Kona hans Sæunn Jófríður Jóhannesdóttir.

Sigríður Pálma var með foreldrum sínum í Eyjum og flutti með þeim til Bakkafjarðar 1917 og til Reykjavíkur 1919.
Þau Jóhannes giftu sig 1937, eignuðust eitt barn. Þau bjuggu í Ljósafossstöð 1946-1958.
Sigríður Pálma lést 1986 og Jóhannes 1992.

I. Maður Sigríðar Pálmu, (25. september 1937), var Jóhannes Guðmundsson vélstjóri í Ljósafossstöð í Sogi, f. 5. janúar 1910 á Ísafirði, d. 9. október 1991. Foreldrar hans voru Guðmundur Tjörvi Jónsson bátasmiður í Rómaborg á Ísafirði, f. 13. janúar 1859 í Laugardal í Tálknafirði, d. 19. júní 1910 á Ísafirði, og kona hans Guðrún Þorbjörg Bjarnadóttir húsfreyja, f. 29. janúar 1870 á Ísafirði, d. 23. febrúar 1921.
Barn þeirra:
1. Ásbjörn Ragnar Jóhannesson, f. 1. apríl 1949. Hann var kjörbarn þeirra.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnús Haraldsson.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.