Guðrún Pálsdóttir (sjúkraliði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. apríl 2021 kl. 20:45 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. apríl 2021 kl. 20:45 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Guðrún Pálsdóttir.

Guðrún Pálsdóttir húsfreyja, sjúkraliði fæddist 23. september 1933 á Brekku og lést 25. ágúst 2013 á hjúkrunarheimilinu Eir í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Páll Þorbjörnsson skipstjóri, kaupfélagsstjóri, alþingismaður, forstjóri, kaupmaður, f. 7. október 1906, d. 20. febrúar 1975, og kona hans Bjarnheiður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 7. nóvember 1919, d. 10. ágúst 1976.

Börn Bjarnheiðar og Páls:
1. Guðrún Pálsdóttir sjúkraliði, f. 23. september 1933 á Brekku, d. 25. ágúst 2013. Maður hennar Þröstur Sigtryggsson, látinn.
2. Hrafn Pálsson sjómaður stýrimaður, f. 10. mars 1935 í Þingholti, d. 22. maí 1986. Barnsmóðir hans Fanney Sigurbjörg Jóhannsdóttir. Kona hans Johanna Nielsen.
3. Guðbjörg Pálsdóttir sjúkraliði, f. 20. júlí 1937 á Herðubreið. Fyrrum maður hennar Sturla Friðrik Þorgeirsson.
4. Arndís Pálsdóttir húsfreyja, fiskiðnaðarkona, f. 29. september 1938 á Herðubreið, d. 20. apríl 2009. Maður hennar Georg Stanley Aðalsteinsson, látinn.
5. Þorbjörn Þórðarson Pálsson framkvæmdastjóri, löggiltur fasteignasali, f. 3. maí 1951. Kona hans Ester Jóhanna Antonsdóttir.

Guðrún var með foreldrum sínum, en dvaldi löngum hjá föðurforeldrum sínum í Reykjavík í æsku sinni.
Hún lauk gagnfræðaprófi í Gagnfræðaskólanum 1950, síðar lauk hún sjúkraliðaprófi.
Guðrún fór ung að heiman, var m.a. í vist í Reykjavík, vann verslunarstörf, var starfsmaður á Kleppi og stundaði sauma. Að loknu sjúkraliðanámi vann hún á Kleppi og á geðdeild Landspítalans við Hringbraut.
Þau Þröstur giftu sig 1954, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Reykjavík.
Guðrún lést 2013 og Þröstur 2017.

I. Maður Guðrúnar, (23. maí 1954), var Þröstur Sigtryggsson frá Núpi, skipherra hjá Landhelgisgæslunni, f. 7. júlí 1929, d. 9. desember 2017. Foreldrar hans voru Sigtryggur Guðlaugsson, skólastjóri við Núpsskóla, prestur, prófastur, f. 27. september 1862 á Þröm í Garðsárdal í Eyjaf., d. 3. ágúst 1959, og kona hans Hjaltalína Margrét Guðjónsdóttir húsfreyja, kennari, f. 4. júlí 1890 á Brekku á Ingjaldssandi, V.-Ís , d. 30. janúar 1981.
Börn þeirra:
1. Margrét Hrönn Þrastardóttir stöðvarstjóri, f. 18. júlí 1953. Maður hennar Sigurður Hauksson.
2. Bjarnheiður Dröfn Þrastardóttir skrifstofumaður, f. 20. júní 1955. Maður hennar Sigurjón Árnason.
3. Sigtryggur Hjalti Þrastarson sjómaður, f. 7. febrúar 1957. Barnsmóðir hans Edda Þorleifsdóttir. Kona hans Guðríður Hallbjörg Guðjónsdóttir Björnssonar.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.