Jón Magnússon (formaður)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júlí 2006 kl. 09:13 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júlí 2006 kl. 09:13 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Jón Magnússon


Jón Magnússon, Vallartúni, fæddist 10. október 1889 að Kirkjubæ í Vestmannaeyjum og lést 3. desember 1964 á Húsavík. Foreldrar hans voru Magnús Eyjólfsson og Guðlaug Guðmundsdóttir. Einkadóttir Jóns var Sigrún, búsett á Húsavík.

Jón tók þátt í öllum þeim störfum sem að fylgdu búskapnum á Kirkjubæ og síðar Gísla á Búastöðum. Jón var afburðagóður fjallamaður og kjarkmikill. Hann fór fyrir Kirkjubæjarmönnum í öllum úteyja- og fjallaferðum í áratugi.

Hann byrjaði að róa á árabát með Ísleifi á Kirkjubæ. Jón hóf formennsku árið 1910 á Ísak og var formaður til ársins 1940 á hinum ýmsu bátum. Hann átti fjóða hlut í Braga og stýrði honum í 11 vertíðir.



Heimildir

  • Eyjólfur Gíslason. Minning mætra manna. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1965.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.