Jóhanna Brynjólfsdóttir (Ofanleiti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. nóvember 2019 kl. 12:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. nóvember 2019 kl. 12:11 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jóhanna Brynjólfsdóttir''' frá Ofanleiti, vinnukona fæddist þar 1. júlí 1863 lést 24. júlí 1900 á Löndum. <br> Faðir Jóhönnu var Brynjólfur Jónsson...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Brynjólfsdóttir frá Ofanleiti, vinnukona fæddist þar 1. júlí 1863 lést 24. júlí 1900 á Löndum.
Faðir Jóhönnu var Brynjólfur Jónsson prestur í Eyjum, búandi í Nöjsomhed 1853-1861, síðan að Ofanleiti; alþingismaður 1859 og 1863, f. 8. september 1826 á Hofi í Álftafirði í S-Múl., d. 19. nóvember 1884 að Ofanleiti, Jónsson prests að Hofi, f. 9. nóvember 1798 að Stafafelli í Lóni, d. 16. ágúst 1843 á Hofi, Bergssonar prests og prófasts að Stafafelli 1797-1824, f. í ágúst 1772, d. 28. október 1837, Magnússonar, og konu sr. Bergs (1797), Guðrúnar húsfreyju og prestkonu, f. um 1764, d. 10. september 1849, Jónsdóttur.
Móðir sr. Brynjólfs og kona sr. Jóns Bergssonar var (29. ágúst 1824, fyrri maður hennar) Rósa húsfreyja og prestkona, f. 12. október 1802 í Eydölum í Breiðdal, S.-Múl., d. 2. júní 1856 á Þingmúla í Skriðdal á Héraði, Brynjólfsdóttir prests og prófasts í Eydölum, f. 8. september 1757, d. 30. júlí 1825, Gíslasonar, og konu sr. Brynjólfs Gíslasonar, (1785), Kristínar húsfreyju og prestkonu, f. 1761, d. 15. október 1842, Nikulásdóttur.

Móðir Jóhönnu og kona sr. Brynjólfs var Ragnheiður húsfreyja að Ofanleiti, f. 27. júní 1829, d. 11. ágúst 1921, Jónsdóttir verslunarstjóra í Kúvíkum við Reykjarfjörð á Suður-Ströndum, f. 1771 í Vík í Lóni, d. 27. júlí 1846, Salómonssonar bónda í Vík og Hraunkoti í Lóni, S-Múl., f. (1740), Jónssonar, og konu Salómons Jónssonar í Vík, Guðrúnar húsfreyju, f. 1735, Konráðsdóttur.
Móðir Ragnheiðar prestkonu að Ofanleiti og síðari kona, (31. október 1818), Jóns Salómonssonar verslunarstjóra var Sigríður húsfreyja, f. 1788, d. 6. desember 1859, Benediktsdóttir bónda á Dvergsstöðum, Grísará og Munkaþverá, f. 1759, d. 9. júní 1823, Þorvaldssonar, og konu Benedikts, Sigríðar húsfreyju, f. 1756, Sigurðardóttur.

Börn Ragnheiðar og Brynjólfs:
1. Rósa Jóhanna Sigríður Brynjólfsdóttir, f. 2. nóvember 1854 í Nöjsomhed, d. 13. janúar 1889.
2. Jónína Kristín Nikólína Brynjólfsdóttir húsfreyja á Löndum, f. 14. ágúst 1856 í Nöjsomhed, d. 16. nóvember 1906.
3. Jóhanna Kristjana Brynjólfsdóttir, f. 23. desember 1858 í Nöjsomhed, d. 13. mars 1860 úr „hósta, kvefsótt“.
4. Gísli Brynjólfsson læknir í Danmörku, f. 3. mars 1861 í Nöjsomhed, d. 18. september 1930.
5. Jóhanna Brynjólfsdóttir vinnukona á Löndum, f. 1. júlí 1863 að Ofanleiti, d. 24. júlí 1900.
6. Kristín Brynjólfsdóttir húsfreyja og prestkona á Stað í Grunnavík, f. 20. apríl 1865 að Ofanleiti, d. 19. nóvember 1918.
7. Sigríður Brynjólfsdóttir, fór til Vesturheims, f. 10. september 1868, d. 6. nóvember 1932. Maður hennar var Páll Símonarson
8. Ingibjörg Brynjólfsdóttir húsfreyja og prestkona á Prestbakka á Síðu, f. 26. febrúar 1871 að Ofanleiti, d. 12. maí 1920.

Jóhanna var með foreldrum sínum í æsku, með þeim að Ofanleiti 1880, var vinnukona hjá Magnúsi Stephensen landshöfðingja og konu hans Elínu Stephensen í Landshöfðingjahúsi í Reykjavík 1890.
Hún var vinnukona á Löndum við andlát 1900.
Jóhanna var ógift og barnlaus


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.