Sigríður Brynjólfsdóttir (Ofanleiti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Brynjólfsdóttir frá Ofanleiti, húsfreyja í Blaine í Washingtonríki í Bandaríkjunum fæddist 10. september 1868 að Ofanleiti og lést 6. nóvember 1932 í Blaine.
Faðir Sigríðar var Brynjólfur Jónsson prestur í Eyjum, búandi í Nöjsomhed 1853-1861, síðan að Ofanleiti; alþingismaður 1859 og 1863, f. 8. september 1826 á Hofi í Álftafirði í S-Múl., d. 19. nóvember 1884 að Ofanleiti, Jónsson prests að Hofi, f. 9. nóvember 1798 að Stafafelli í Lóni, d. 16. ágúst 1843 á Hofi, Bergssonar prests og prófasts að Stafafelli 1797-1824, f. í ágúst 1772, d. 28. október 1837, Magnússonar, og konu sr. Bergs (1797), Guðrúnar húsfreyju og prestkonu, f. um 1764, d. 10. september 1849, Jónsdóttur.
Móðir sr. Brynjólfs og kona sr. Jóns Bergssonar var (29. ágúst 1824, fyrri maður hennar) Rósa húsfreyja og prestkona, f. 12. október 1802 í Eydölum í Breiðdal, S.-Múl., d. 2. júní 1856 á Þingmúla í Skriðdal á Héraði, Brynjólfsdóttir prests og prófasts í Eydölum, f. 8. september 1757, d. 30. júlí 1825, Gíslasonar, og konu sr. Brynjólfs Gíslasonar, (1785), Kristínar húsfreyju og prestkonu, f. 1761, d. 15. október 1842, Nikulásdóttur.

Móðir Sigríðar og kona sr. Brynjólfs var Ragnheiður húsfreyja að Ofanleiti, f. 27. júní 1829, d. 11. ágúst 1921, Jónsdóttir verslunarstjóra í Kúvíkum við Reykjarfjörð á Suður-Ströndum, f. 1771 í Vík í Lóni, d. 27. júlí 1846, Salómonssonar bónda í Vík og Hraunkoti í Lóni, S-Múl., f. (1740), Jónssonar, og konu Salómons Jónssonar í Vík, Guðrúnar húsfreyju, f. 1735, Konráðsdóttur.
Móðir Ragnheiðar prestkonu að Ofanleiti og síðari kona, (31. október 1818), Jóns Salómonssonar verslunarstjóra var Sigríður húsfreyja, f. 1788, d. 6. desember 1859, Benediktsdóttir bónda á Dvergsstöðum, Grísará og Munkaþverá, f. 1759, d. 9. júní 1823, Þorvaldssonar, og konu Benedikts, Sigríðar húsfreyju, f. 1756, Sigurðardóttur.

Börn Ragnheiðar og Brynjólfs:
1. Rósa Jóhanna Sigríður Brynjólfsdóttir, f. 2. nóvember 1854 í Nöjsomhed, d. 13. janúar 1889.
2. Jónína Kristín Nikólína Brynjólfsdóttir húsfreyja á Löndum, f. 14. ágúst 1856 í Nöjsomhed, d. 16. nóvember 1906.
3. Jóhanna Kristjana Brynjólfsdóttir, f. 23. desember 1858 í Nöjsomhed, d. 13. mars 1860 úr „hósta, kvefsótt“.
4. Gísli Brynjólfsson læknir í Danmörku, f. 3. mars 1861 í Nöjsomhed, d. 18. september 1930.
5. Jóhanna Brynjólfsdóttir vinnukona á Löndum, f. 1. júlí 1863 að Ofanleiti, d. 24. júlí 1900.
6. Kristín Brynjólfsdóttir húsfreyja og prestkona á Stað í Grunnavík, f. 20. apríl 1865 að Ofanleiti, d. 19. nóvember 1918.
7. Sigríður Brynjólfsdóttir, fór til Vesturheims, f. 10. september 1868, d. 6. nóvember 1932.
8. Ingibjörg Brynjólfsdóttir húsfreyja og prestkona á Prestbakka á Síðu, f. 26. febrúar 1871 að Ofanleiti, d. 12. maí 1920.

Sigríður var með foreldrum sínum í æsku, en faðir hennar lést, er hún var á seytjánda ári.
Hún var með ekkjunni móður sinni á Ofanleiti 1890, fluttist til Reykjavíkur 1891 ásamt Ragnheiði móður sinni og Ingibjörgu systur sinni, og Páll Símonarson vinnumaður fluttist frá Hjalli til Seyðisfjarðar á sama ári og frá Þórarinsstaðaeyri þar til Winnipeg 1892. Brottför Sigríðar til Vesturheims er ekki ljós, ekki nefnd í Vesturfaraskránni.
Þau Páll giftu sig 1895, eignuðust ekki börn.
Sigríður lést 1932 og Páll 1941.

I. Maður Sigríðar, (1895), var Páll Símonarson frá Syðri-Rotum u. Eyjafjöllum, bóndi í Blaine, f. 24. júlí 1859, d. 25. mars 1941 í Blaine. Þau voru barnlaus.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Frændgarður. Björn Magnússon. Prentsmiðjan Leiftur 1981.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.