Halldóra Björnsdóttir (Hlíðarhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. ágúst 2019 kl. 18:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. ágúst 2019 kl. 18:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Halldóra Björnsdóttir (Hlíðarhúsi)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit
Halldóra Guðrún Björnsdóttir.

Halldóra Guðrún Björnsdóttir frá Siglufirði, húsfreyja, ljósmóðir fæddist þar 5. júlí 1921 og lést 4. júní 2009.
Foreldrar hennar voru Björn Zophonías Sigurðsson frá Vatnsenda í Héðinsfirði, f. 4. nóvember 1892, d. 30. ágúst 1974, og kona hans Eiríkssína Kristbjörg Ásgrímsdóttir frá Hólakoti í Fljótum, húsfreyja, f. 11. apríl 1897, d. 18. september 1960.

Halldóra lauk námi í ljósmóðurfræðum í Ljósmæðraskóla Íslands 1944.
Hún var um skeið við ljósmóðurstörf í Eyjum. Einnig sá hún um veitingar í Ráðhúsinu um árabil.
Þau Bogi giftu sig 1944, eignuðust sjö börn, en eitt þeirra fæddist andvana og annað lést sjö ára. Þau bjuggu í Hlíðarhúsi í byrjun og í fjórtán ár, þá í húsi sínu við Heiðarveg 64 til ársins 1997.
Þau fluttu til Kópavogs 1997, bjuggu á Furugrund 60.
Halldóra Guðrún og Bogi dvöldu síðustu ár sín í Sunnuhlíð í Kópavogi.
Bogi lést 2007 og Halldóra Guðrún 2009.

I. Maður Halldóru Guðrúnar, (14. október 1944), var Bogi Jóhannsson frá Hlíðarhúsi, rafvirkjameistari, f. 30. september 1920, d. 20. maí 2007.
Börn þeirra:
1. Jóhanna Sigríður Bogadóttir myndlistarmaður, f. 8. nóvemer 1944. Fyrrverandi maki Brynjar Viborg.
2. Eiríkur Bogason rafvirki, rafmagnstæknifræðingur, veitustjóri, framkvæmdastjóri, f. 24. janúar 1947, d. 23. mars 2018. Kona hans Guðbjörg Ólafsdóttir.
3. Kristján Bogason rafvirkjameistari, f. 24. maí 1948. Kona hans Jóhanna Emilía Andersen.
4. Soffía Bogadóttir, f. 13. júlí 1950, d. 27. júlí 1957.
5. Svava Bogadóttir kennari, skólastjóri í Vogum, f. 30. maí 1954. Fyrri maður hennar Hreinn Sigurðsson. Síðari maður Kristján Bjarnason.
6. Andvana drengur, f. 13. september 1959.
7. Gunnar Bogason sjómaður, f. 15. ágúst 1961. Fyrri maki Kathleen Valborg Clifford, síðari maki Bergþóra Aradóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.