Magnúsína Sæmundsdóttir (Oddhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júní 2019 kl. 11:51 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júní 2019 kl. 11:51 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Magnúsína Sigríður Sæmundsdóttir.

Magnúsína Sigríður Sæmundsdóttir (Maggý) frá Oddhól, húsfreyja, verslunarkona, talsímakona, síðar á Hvammstanga fæddist 5. ágúst 1934 á Miðhúsum og lést 4. júní 2019 á sjúkrahúsinu á Akranesi.
Foreldrar hennar voru Sæmundur Jónsson frá Miðbæli u. Eyjafjöllum, verkamaður, f. 27. apríl 1902, d. 12. október 1943, og kona hans Sigurbjörg Magnúsdóttir frá Dyrhólum í Mýrdal, húsfreyja, f. 30. ágúst 1905, d. 25. júní 1996.

Bróðir Magnúsínu er
1. Sæmundur Sigurbjörn Sæmundsson bifvélavirki, nú á Selfossi, f. 11. júní 1943 í Oddhól.

Magnúsína var með foreldrum sínum í bernsku, en faðir hennar dó, er hún var níu ára.
Hún var með móður sinni, var verslunarkona og um skeið talsímakona, bjó um skeið á Sauðárkróki.
Þau Friðrik giftu sig 1959, eignuðust þrjú börn og ólu upp Harald Friðrik son Sigurbjargar dóttur sinnar. Þau bjuggu um skeið á Svalbarði, en síðan í Oddhól til Goss.
Þau fluttust til Hvammstanga eftir Gos og bjuggu þar.
Friðrik Jón lést 2000.
Magnúsína bjó á Hvammstanga.
Hún lést 2019.

I. Maður Magnúsínu Sigríðar, (24. desember 1959), var Friðrik Jón Friðriksson frá Sauðárkróki, útgerðarmaður, skipstjóri, f. 30. nóvember 1936, d. 8. október 2000.
Börn þeirra:
1. Sigurbjörg Friðriksdóttir, að Lækjarmel 10 í Hvalfjarðarsveit, húsfreyja, tannfræðingur, leikskólastjóri í Hvalfjarðarsveit, f. 1. júlí 1959. Maður hennar er Skúli Þórðarson.
2. Rósa Fanney Friðriksdóttir húsfreyja, skrifstofumaður á Hvammstanga, f. 13. janúar 1962. Maður hennar er Guðmann S. Jóhannesson.
3. Erna Friðriksdóttir húsfreyja, starfsmaður Hótel Hvammstanga, f. 29. febrúar 1964. Maður hennar er Bjarki Haraldsson.
Uppeldissonur og barnabarn
4. Haraldur Friðrik Arason, f. 11. janúar 1975.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið 9. desember 2000 og 25. júní 2019. Minning Friðriks og Magnúsínu.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.