Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk
Fara í leit
Í minningu Páls Steingrímssonar Kvikmyndagerðarmanns, myndlistamanns og kennara
Haustið 2015 kom Páll Steingrímsson að máli við Sagnheima, byggðasafn og Safnahús
Vestmannaeyja um aðstoð við samantekt heimildarmyndar, þar sem gerð yrði grein
fyrir lífshlaupi hans ásamt helstu verkefnum og myndum. Nafni hans og vinur, Páll
Magnússon leiddi síðan söguþráðinn með nýjum viðtölum við listamanninn.
Að verkefninu komu annars vegar samstarfsmenn Páls hjá KVIK kvikmyndagerð með Ólaf
Ragnar Halldórsson fremstan í flokki, sem sá um efnisvinnu, kvikmyndatöku, klippingu
o.fl. og hins vegar áhugahópur um verkefnið, skipaður Erpi Hansen, Helgu
Hallbergsdóttur, Helga Bragasyni, Kára Bjarnasyni, Marinó Sigursteinssyni og Páli
Magnússyni.
Fjölmargir styrktu verkefnið, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið,
Landsbankinn og Vestmannaeyjabær ásamt fjölmörgum fyrirtækjum og einstaklingum,
ýmist með beinum peningastyrkjum eða kaupum á dvd diskum í forsölu. Myndin „Frá
Heimaey á heimsenda – ferilshlaup Páls Steingrímssonar“ var frumsýnd í Sagnheimum
þann 25. júlí 2016 á 86 ára afmælisdegi Páls. Myndin varð nokkurs konar svanasöngur
Páls Steingrímssonar, því að hann lést skömmu síðar, 11. nóvember 2016.
Í Sagnheimum, byggðasafni er starfrækt Pálsstofa þar sem Páls er minnst og myndir
hans sýndar. Þar má einnig kaupa myndina Frá Heimaey á heimsenda.
Aðstandendur verkefnisins þakka öllum sem gerðu Páli Steingrímssyni kleift að
ljúka síðasta verkefni sínu. Minning hans lifir í verkum hans og hjörtum okkar allra sem
kynntumst honum.
Blessuð sé minning Páls Steingrímssonar.
|
|