Guðrún Bjarnadóttir (Vilborgarstöðum)
Guðrún Bjarnadóttir var fædd árið 1868. Hún dvaldist á Vilborgarstöðum á heimili þeirra hjóna, Árna hreppstjóra og Guðfinnu konu hans. Móðir Guðrúnar hét Margrét Guðmundsdóttir og var vinnukona hjá hjónunum, þegar Guðrún gekk í barnaskólann.
Faðir Guðrúnar var Bjarni Bjarnason maður Margrétar, bóndi í Dölum og vinnumaður á Vilborgarstöðum. Hann fór að Hraunkróki í Hrunamannahreppi, - var þar 1880.
Guðrún fór til Utah 1888 frá Vilborgarstöðum.
Heimildir
- Heimaslóð.is.
- Þorsteinn Víglundsson. Saga barnafræðslunnar í Vestmannaeyjum. Blik. 23. árg 1962.