Jón Júlíus Sveinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. janúar 2016 kl. 15:27 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. janúar 2016 kl. 15:27 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Jón Júlíus Sveinsson og Málmfríður Ólafsdóttir.

Jón Júlíus Sveinsson Vesturfari frá Löndum fæddist 1. desember 1872 og lést 24. maí 1951 Vestanhafs. Hann bar eftirnafnið Thorderson Vestra.
Foreldrar hans voru Sveinn Þórðarson beykir á Löndum, f. 18. febrúar 1827 og 4. nóvember 1901 Vestanhafs, og kona hans Helga Árnadóttir húsfreyja, f. 6. júlí 1833, d. 15. febrúar 1907 í Vesturheimi.

Systur hans voru:
1. Solveig Þórdís Jórunn Sveinsdóttir húsfreyja, f. 24. apríl 1858, d. 6. apríl 1920 Vestanhafs. Hún var kona Árna Árnasonar yngri frá Vilborgarstöðum, sem fór Vestur.
2. Jóhanna Guðný Helga Sveinsdóttir húsfreyja, f. 9. febrúar 1861, d. 15. febrúar 1907, (17. maí 1927, segir annarsstaðar).

Jón Júlíus fór til Vesturheims 1878 með foreldrum sínum. Hann sótti landið heim 1903 með trúboð á vegum mormóna. Hann var þá ekkill, kynntist Málmfríði Ólafsdóttur frá Akranesi, sem giftist honum síðar vestra. Þau bjuggu í Cleveland.
Hann var bóndi í Cleveland í Emery í Utah, lést eftir hjartaáfall 1951.

Jón Júlíus var tvíkvæntur.
I. Fyrri kona hans, (5. desember 1894), var Emma Marie Jensen af dönskum ættum, d. 1895.
Barn þeirra var
1. Christina Matilda Thorderson.

II. Síðari kona hans, (3. janúar 1906) var Freida Olaffson (Málmfríður Ólafsdóttir) frá Akranesi. Foreldrar hennar voru Ólafur Árnason Bergþórssonar og kona hans Anna Sveinbjarnardóttir húsfreyja, sem fór síðar til Winnipeg.
Börn þeirra voru:
2. Julius Svein Thorderson.
3. Lawrence Erlender Thorderson.
4. Parley Eugene Thorderson.
5. Helga Erasmuson Thorderson.
6. Emma Pauline Thorderson.
7. Stúlka.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Google.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Úr gögnum Kára Bjarnasonar og Fred Woods. References 1. Helga og Sveinn, 2. Sveinsdóttir.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.