Helga Árnadóttir (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Sveinn Þórðarson og Helga Árnadóttir.

Helga Árnadóttir húsfreyja á Löndum fæddist 6. júlí 1833 í Tómthúsi og lést 15. febrúar 1907 í Vesturheimi.
Foreldrar hennar voru Árni Hafliðason sjómaður í Ömpuhjalli, f. 1795, d. 26. júlí 1847, og kona hans Guðný Erasmusdóttir húsfreyja, f. 6. september 1794, d. 14. júní 1888 í Vesturheimi.

Systur Helgu voru:
1. Guðnýjar Árnadóttir húsfreyja í Ömpuhjalli, f. 27. desember 1834, d. 7. desember 1915 í Vesturheimi.
2. Guðlaug Árnadóttir vinnukona, f. 14. janúar 1824, d. 12. nóvember 1893.

Helga var tveggja ára með foreldrum sínum í Hallbergshúsi 1835. Þar var einnig systir hennar Guðný eins árs. Hún var með þeim í Árnahúsi 1836 og í Ömpuhjalli 1840.
1845 var hún 13 ára vinnukona í Godthaab.
Þau Sveinn giftu sig 1854 og bjuggu á Löndum, misstu tvö börn í frumbernsku.
Þau fóru til Utah 1878 frá Löndum með barnið Jón Júlíus Sveinsson, og dóttir þeirra Solveig Þórdís Jórunn fór Vestur með fjölskyldu sína 1880.
Hjónin bjuggu 10-12 ár í Spanish Fork. Þaðan fluttust þau til Emery í Cleveland í Utah, námu land og bjuggu þar lengi.

Maður, (28. október 1854), var Sveinn Þórðarson beykir á Löndum, f. 19. febrúar 1827, d. 4. nóvember 1901 í Vesturheimi.
Börn þeirra hér:
1. Jóhanna Guðný Sveinsdóttir, f. 18. júlí 1855, d. 22. október úr „vatnssýki“.
2. Jóhanna Guðný Solveig Sveinsdóttir, f. 22. apríl 1857, d. 7. apríl 1857 úr ginklofa.
3. Solveig Þórdís Jórunn Sveinsdóttir, f. 24. apríl 1858, d. 6. apríl 1920 Vestanhafs. Hún var kona Árna Árnasonar yngri frá Vilborgarstöðum, sem fór Vestur.
4. Jóhanna Guðný Helga Sveinsdóttir, f. 9. febrúar 1861. Fór til Vesturheims frá Stakkagerði 1881.
5. Jón Júlíus Sveinsson, bar eftirnafnið Thorderson Vestanhafs, f. 1. desember 1872, d. 24. maí 1951. Hann fór til Utah með foreldrum sínum 1878.
6. Sveinn Magnús Sveinsson, f. 10. jnúar 1879 í Spanish Fork, skírður (blessed) 7. febrúar 1879. Mun hafa dáið fyrir manntal þar 1880 samkv. ævisögu Jóhönnu Sveinsdóttur.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is
  • Manntöl.
  • Our Pioneer Heritage Vol. 7. Kate B. Carter. Daughters of Utah Pioneers. Salt Lake City 1964.
  • Prestþjónustubækur.
  • Úr gögnum Kára Bjarnasonar og Fred Woods. References 1. Helga og Sveinn, 2. Sveinsdóttir.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.