Jóhanna Guðmundsdóttir (Sólheimatungu)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. október 2015 kl. 15:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. október 2015 kl. 15:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jóhanna Guðrún Guðmundsdóttir''' húsfreyja í Sólheimatungu fæddist 20. október 1907 á Stokkseyri og lést 10. júlí 1991.<br> Foreldrar hennar voru [...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jóhanna Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Sólheimatungu fæddist 20. október 1907 á Stokkseyri og lést 10. júlí 1991.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Sigurðsson verkamaður, f. 23. ágúst 1875, d. 16. ágúst 1961, og kona hans Guðrún Sveinbjörnsdóttir húsfreyja, f. 11. nóvember 1868, d. 3. maí 1955.

Jóhanna var með foreldrum sínum í æsku, fluttist til Eyja með móður sinni 1914, en faðir hennar hafði flust til Eyja 1912.
Hún var með foreldrum sínum á Reynifelli við Vesturveg 1918-1920, á Seljalandi við Hásteinsveg 1921 og enn 1925.
Hún giftist Ásbirni 1929, bjó með honum og Ester dóttur þeirra í Mörk, (Hásteinsvegi) 13 1930, bjuggu í Bergholti, (Vestmannabraut) 67 1934, síðar í Sólheimatungu, (Brekastíg) 14.
Þau fluttust til Reykjavíkur, bjuggu á Brekkustíg 12 við andlát.
Ásbjörn lést 1874 og Jóhanna 1991.

Maður Jóhönnu, (1929), var Ásbjörn Þórðarson formaður, netamaður frá Sléttabóli á Brunasandi í V-Skaft., f. 14. desember 1899, d. 10. nóvember 1974.
Börn þeirra voru:
1. Ester Ásbjörnsdóttir, f. 14. júní 1930.
2. Svala Ásbjörnsdóttir, f. 22. júní 1931, d. 18. nóvember 2012.
3. Hávarður Ásbjörnsson sjómaður, f. 2. febrúar 1934, d. 12. febrúar 1962.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.