Guðrún Kristjánsdóttir (Ekru)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. september 2015 kl. 11:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. september 2015 kl. 11:49 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðrún Kristjánsdóttir''' húsfreyja, saumakona frá Voðmúlastöðum í A-Landeyjum, húsfreyja í Eyjum, síðar í Reykjavík fæddist 23. júní 1889 og lést 8. júní ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Kristjánsdóttir húsfreyja, saumakona frá Voðmúlastöðum í A-Landeyjum, húsfreyja í Eyjum, síðar í Reykjavík fæddist 23. júní 1889 og lést 8. júní 1960.
Foreldrar hennar voru Kristján Jónsson bóndi á Voðmúlastöðum og í Auraseli, f. 23. mars 1857, d. 4. maí 1937, og kona hans Bóel Erlendsdóttir húsfreyja, f. 18. júní 1857, d. 2. september 1936.

Guðrún var með foreldrum sínum 1890, var vinnukona í Hallgeirseyjarhjáleigu í A-Landeyjum 1910.
Hún fluttist til Eyja úr Fljótshlíð 1911, var með Guðmundi í Lambhaga 1912, fór í Landeyjar til að giftast honum. Þau bjuggu í Lambhaga 1813.
Þau voru í Fagurhól 1915.
1920 var Guðrún flutt inn á Ekru, en þar hafði Ágúst verið leigjandi. Hún var húsfreyja þar með Ágústi, Aldiníu og börnum sínum frá hjónabandi, í Hólmgarði 1924 með sömu áhöfn, þar 1925 og Kristín hafði bæst í hópinn.
Guðrún fluttist til Reykjavíkur 1930.

I. Maður hennar, (2. nóvember 1912 í Landeyjum, slildu samvistir), var Guðmundur Helgason frá Grímsstöðum í V-Landeyjum, þá í Lambhaga, sjómaður, f. 5. febrúar 1884, d. 15. desember 1977.
Börn þeirra voru:
1. Hafsteinn Guðmundsson prentsmiðjustjóri og bókaútgefandi, f. 7. apríl 1912, d. 1. september 1999.
2. Ágúst Kristmann Guðmundsson prentari, prentsmiðjustjóri í Reykjavík, f. 26. ágúst 1913, d. 26. apríl 1980.
3. Ásta Guðbjörg Guðmundsdóttir hárgreiðslukona, skrifstofukona, vann við bókaútgáfu Helgafells, f. 18. desember 1915, d. 4. júlí 1999. Hún var ógift og barnlaus.

II. Guðrún bjó með Ágústi Sigurði Ingvarssyni verkstjóra, f. 27. júní 1890, d. 25. nóvember 1963.
Börn þeirra voru:
4. Aldinía Sólbjört Ágústsdóttir húsfreyja (nefnd Alda og Sólbjört), f. 13.mars 1919, d. 1985. Hún fluttist til Noregs.
5. Kristín Ágústsdóttir, f. 23. janúar 1925, d. 1987. Hún fluttist til Svíþjóðar.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.