Margrét Gísladóttir (Jónshúsi)
Margrét Gísladóttir húsfreyja á Vesturhúsum og í Jónshúsi fæddist 6. maí 1797 og lést 15. september 1860.
Foreldrar hennar voru Gísli bóndi í Hólshúsum í Höfnum, f. 1750, d. 12. maí 1807, Kjartansson bónda í Vorsabæ í Ölfusi, f. 1719, Helgasonar og kona Gísla, Guðrún, skírð 30. ágúst 1765, d. 27. apríl 1836, Hansdóttir bónda í Kotmúla í Fljótshlíð, f. 1730, d. 22. október 1791, Bergsteinssonar.
Margrét var 5 ára í fóstri hjá sr. Benedikt Ingimundarsyni á Stað í Grindavík 1801. Hún var vinnukona í Húsatóftum 1822, á Teigi í Fljótshlíð 1835.
Hún var komin til Eyja 1837 og var þá bústýra á Búastöðum með Þórð son sinn 11 ára hjá sér, einnig 1838 og 1839, en þá var Samúel líka hjá henni þar. 1840 var hún vinnukona á Miðhúsum.
Þau Guðmundur giftu sig 29. október 1841 og bjuggu þá á Vesturhúsum.
Við skráningu 1845 var hún húsfreyja á Vesturhúsum með Guðmundi og fósturbarninu Halldóru Samúelsdóttur, f. 19. september 1844, en hún var barn Samúels sonar hennar og Halldóru Jónsdóttur,
síðar húsfreyju á Steinsstöðum.
Margrét lést 1860 í Hvítingum úr taugaveiki.
I. Barnsfaðir Margrétar var Bjarni Jónsson bóndi á Strönd á Rangárvöllum, Helgusöndum og Efri-Kvíhólma undir Eyjafjöllum, f. 21. febrúar 1799, d. 25. apríl 1877. Hann var sonur Jóns Jónssonar, síðar bónda í Háagarði.
Barn þeirra var
1. Samúel Bjarnason bóndi í Görðum við Kirkjubæ, mormónaprestur, f. 22. apríl 1823, d. 16. ágúst 1890 í Spanish Fork, Utah.
II. Barnsfaðir Margrétar var Sveinbjörn Árnason vinnumaður í Fljótshlíð, f. 1795, d. 1. febrúar 1839.
Barn þeirra var
2. Þórður Sveinbjörnsson vinnumaður, f. 1828 í Eyvindarmúlasókn í Fljótshlíð, hrapaði ofan af húsi og dó af því 2. febrúar 1860.
III. Maður Margrétar, (29. október 1841), var Guðmundur Guðmundsson sjómaður á Vesturhúsum, f. um 1795 í Sigluvíkursókn, Rang.
Hún var síðari kona hans.
Þau voru barnlaus.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.