Karólína Dudman Tómasdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. nóvember 2014 kl. 11:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. nóvember 2014 kl. 11:54 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Karólína Tómasdóttir verkakona fæddist 27. maí 1898 í Hlíðarhúsi og lést 16. júní 1980.
Móðir hennar var Dómhildur Guðmundsdóttir , f. 21. mars 1865 í Breiðahlíð í Mýrdal, d 19. desember 1944 í Keflavík.
Faðir hennar var Thomas Dudman, enskur skipstjóri.

Tvíburasystir Karólínu var Dagmar Dudman Tómasdóttir verslunarmaður í Reykjavík.

Karólína var fóstruð á Kirkjubæ hjá hjónunum Guðlaugu Guðmundsdóttur, f. 27. maí 1855, d. 20. nóvember 1931 og Magnúsi Eyjólfssyni, f. 17. mars 1860, d. 24. júlí 1940.
Dagmar systir hennar var með móður sinni í fyrstu og var með henni á Nyrðri-Flankastöðum á Miðnesi 1901.
Karólína var vinnukona í Uppsölum 1920 og verkakona búandi hjá fósturforeldrum sínum á Kirkjubæ 1930. Hún bjó síðar á Brekastíg 28B.
Karólína lést í Eyjum 1980.


Heimildir