Guðmundur Þorláksson (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2014 kl. 17:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2014 kl. 17:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðmundur Þorláksson (Vesturhúsum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Þorláksson bóndi á Vesturhúsum og í Ólafshúsum fæddist 1763 í Dölum, drukknaði 5. mars 1834 við Nausthamar.
Móðir hans var Þuríður Þorvaldsdóttir, húsfreyja, ekkja á Vesturhúsum 1801, f. 1726, d. 5. febrúar 1813. Líklega var faðir hans Þorlákur Jónsson búandi í Dölum 1762.

Guðmundur var bóndi á Vesturhúsum 1801, í Ólafshúsum 1816.
Hann var einn af skipverjum hjá Jónasi Vestmann á Þurfalingi, er honum hlekktist á nærri Nausthamri 5. mars 1834. Þar drukknaði hann og 11 aðrir, 4 var bjargað fyrir harðfylgi Ólafs bónda og smiðs á Kirkjubæ, en Jónas formaður komst á land í Löngu og lést þar.

Kona Guðmundar, (4. nóvember 1791), var Helga Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 1767, d. 30. desember 1846.
Börn þeirra hér:
1. Margrét Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 8. ágúst 1792, d. 29. júní 1862.
2. Bjarni Guðmundsson, f. 30. desember 1793, d. 5. janúar 1794 úr ginklofa.


Heimildir