Sigríður Oddsdóttir (Stakkagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 22:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. mars 2014 kl. 22:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sigríður Oddsdóttir (Stakkagerði)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Oddsdóttir vinnukona í Stakkagerði fæddist 1778 og lést 24. desember 1826.
Hún var vinnukona í Stakkagerði 1809, Vilborgarstöðum 1816, niðursetningur þar 1826 við andlát.

Barnsfaðir hennar var Þorsteinn Guðmundsson, þá vinnumaður á Kirkjubæ, síðar bóndi á Vilborgarstöðum.
Barnið var
Rannveig Þorsteinsdóttir, f. 29. september 1809, d. 30. september 1809 úr „venjulegum barnaveikindum“, mun vera ginklofi.


Heimildir