Sigríður Oddsdóttir (Stakkagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigríður Oddsdóttir vinnukona í Stakkagerði og á Vilborgarstöðum fæddist 1778 og lést 24. desember 1826.
Hún var vinnukona í Stakkagerði 1809, á Vilborgarstöðum 1816, niðursetningur þar 1826 við andlát.

I. Barnsfaðir hennar var Þorsteinn Guðmundsson, þá vinnumaður á Kirkjubæ, síðar bóndi á Vilborgarstöðum.
Barnið var
1. Rannveig Þorsteinsdóttir, f. 29. september 1809, d. 30. september 1809 úr „venjulegum barnaveikindum“, mun vera ginklofi.
II. Barnsfaðir hennar var Guðmundur Jónsson , sem drukknaði 22. apríl 1815.
Barnið var
2. Andvana fætt barn 21. júni 1815.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.