Elín Sigurðardóttir (Ólafshúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. mars 2014 kl. 13:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. mars 2014 kl. 13:31 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Elín Sigurðardóttir (Ólafshúsum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Elín Sigurðardóttir húsfreyja í Ólafshúsum, fæddist í Búðarhóls-Austurhjáleigu í A-Landeyjum 5. desember 1865, d. 26. febr. 1906 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Sigríður Pétursdóttir húsfreyja, síðar í Ólafshúsum og maður hennar Sigurður Sigurðsson bóndi í Kúfhóli í A-Landeyjum. (Sjá Sigríði).

Þau Sigríður Pétursdóttir og Sigurður Sigurðsson voru einnig foreldrar:
1. Steinunnar Sigurðardóttur húsfreyju á Þingeyri.
2. Sigurðar Sigurðssonar formanns í Frydendal, sambýlismanns Önnu Sigríðar Árnadóttur móður Johnsensbræðra.
3. Sigríðar Sigurðardóttur húsfreyju í Lambhaga, konu Guðmundar Guðmundssonar sjómanns í Lambhaga.
4. Þau voru og foreldrar Vigfúsar fósturföður Þorsteins Þ. Víglundssonar.

Maður Elínar var Jón Bergur eldri útvegsbóndi í Ólafshúsum. Elín var fyrri kona hans.
Börn þeirra voru:
1. Sigurlín, f. 1896, d. 1923. Hún var kona Ólafs Ingileifssonar.
2. Jón Bergur yngri, f. 1900.
3. Guðfinna Jónsdóttir, f. 1902, d. 24. febrúar 1994. Hún var kona Ólafs Ingileifssonar.
4. Guðni á Vegamótum, f. 1903, d. 9. febrúar 1944.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Pers.