Eyjólfur Erasmusson (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. apríl 2013 kl. 14:50 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. apríl 2013 kl. 14:50 eftir Víglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Eyjólfur Erasmusson bóndi og hreppstjóri á Vesturhúsum fæddist á Grjótá Fljótshlíð 1807.
Faðir Eyjólfs var Erasmus bóndi á Kirkjulæk í Fljótshlíð 1801, Grjótá þar 1816, f. 1750, d. 29. jan. 1828, Eyjólfsson bónda í Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum 1762, var í Maríubakkahjáleigu á Síðu 1703, f. 1693, d. 1767, Jónssonar bónda í Hörglandskoti á Síðu, (1660), d. fyrir manntal 1703, Skúlasonar, og konu Jóns Skúlasonar, Guðnýjar húsfreyju, ekkju í Maríubakkahjáleigu 1703, f. 1661, Arnbjarnardóttur.
Móðir Erasmusar á Kirkjulæk og síðari kona Eyjólfs í Stóru-Mörk var Helga húsfreyja á Kirkjulæk 1801, f. 1719, d. 4. febrúar 1804, Eyjólfsdóttir bónda á Flókastöðum í Fljótshlíð og Uppsölum í Hvolhreppi 1729, f. 1689, d. 29. nóvember 1762, Þorsteinssonar, og konu Eyjólfs Þorsteinssonar, Helgu húsfreyju, f. 1685, d. 12. febrúar 1758, Bjarnhéðinsdóttur.
Móðir Eyjólfs Erasmussonar og kona Erasmusar á Kirkjulæk var Katrín húsfreyja, f. 1766, d. 21. júní 1834, Ásgeirsdóttir bónda á Kirkjulæk, f. 1732, d. 18. september 1805, Jónssonar bónda í Stóru-Mörk 1729, f. 1690, Magnússonar, og konu Jóns Magnússonar, Þuríðar húsfreyju í Stór-Mörk 1729, f. 1706, d. 27. október 1785, Gísladóttur bónda og lögréttumanns í Stóru-Mörk, Þorlákssonar og seinni konu Gísla, Ingveldar Einarsdóttur.
Móðir Katrínar og kona Ásgeirs á Kirkjulæk var Margrét húsfreyja, f. 1737, Sigurðardóttir.

Eyjólfur Erasmusson var bróðir:
1. Ingibjargar Erasmusdóttur húsfreyju á Kirkjubæ, f. 1790.
2. Þuríðar í Gvendarhúsi.
3. Guðnýjar í Ömpuhjalli.

Eyjólfur var hjá foreldrum sínum á Grjótá í Fljótshlíð 1816, var bóndi á Vesturhúsum 1845, 1850 og 1860, ekkill hjá Katrínu dóttur sinni á Vesturhúsum 1870.
Hann virðist hafa notið sérstaks velvilja hjá Brydefeðgum. Sagt er, að Bryde hafi fært honum brennivínstunnu, er hann koma frá Kaupmannahöfn á vorin.

Kona Eyjólfs Erasmussonar var Valgerður Jónsdóttir húsfreyja, f. 9. ágúst 1805, d. 17. júní 1870.

Börn Eyjólfs og Valgerðar hér:
1. Katrín Eyjólfsdóttir húsfreyja á Vesturhúsum, f. 28. júní 1834, d. 2. apríl 1915.
2. Fósturbarn 1850 og 1855 var Kristín Eiríksdóttir, 8 og 13 ára. Hún var systurdóttir Valgerðar, dóttir Guðrúnar Jónsdóttur húsfreyju í Lágu-Kotey 1845 í Meðallandi. Kristín var vinnukona í Helgahjalli hjá Katrínu Eyjólfsdóttur frænku sinni 1860, hjú í Frydendal hjá Madama Roed 1870. Mun vera sú, sem fór til Utah 1881.
3. Fósturbarn þeirra Eyjólfs 1860 var Eyjólfur Eiríksson, 7 ára. Hann var sonur Eiríks Eiríkssonar og Katrínar Hafliðadóttur vinnukonu í Nýjabæ u. Eyjafjöllum, - barn fyrir hjónaband hans. Eyjólfur fór til Utah 1883.


Heimildir