Pétur Vilhjálmsson (Gjábakka)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. október 2013 kl. 21:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. október 2013 kl. 21:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Pétur Vilhjálmsson''' bóndi í Þykkvabæ í Landbroti, V-Skaft., síðar á Gjábakka, fæddist 1738 og lést 27. september 1792 á Gjábakka.<br> Foreldra er ekk...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Pétur Vilhjálmsson bóndi í Þykkvabæ í Landbroti, V-Skaft., síðar á Gjábakka, fæddist 1738 og lést 27. september 1792 á Gjábakka.
Foreldra er ekki getið.
Hann var bóndi í Þykkvabæ 1773 eða fyrr og til 1784, er hann flúði undan Eldinum (Skaftáreldum).
Hann var kominn til Eyja 1785 og varð bóndi á Gjábakka 1786-dd.

Kona Péturs var Sigríður Eiríksdóttur húsfreyju, f. 1740, d. 28. september 1786 á Gjábakka.
Börn þeirra hér talin:
1. Ástríður Pétursdóttir, f. (1768), d. fyrir 1810. Hún fór með foreldrum sínum til Eyja 1784, en var í Landbroti 1785.
2. Halldóra Pétursdóttir húsfreyja á Miðhúsum, f. 1774, d. 1. maí 1822. Hún var þriðja kona Bjarna Björnssonar á Miðhúsum.
3. Hólmfríður Pétursdóttir. Fór til Eyja með foreldrum sínum.
4. Þorbjörg Pétursdóttir prestkona á Ofanleiti, f. 1778, d. 6. júní 1819. Hún var kona sr. Jóns Arasonar.


Heimildir