Ritverk Árna Árnasonar/Sigbjörn Björnsson (Ekru)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. ágúst 2013 kl. 14:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. ágúst 2013 kl. 14:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sigbjörn Björnsson''' múrari á Ekru, fæddist 8. september 1876 að Loftsölum í Mýrdal og lést 21. maí 1962.<br> Faðir hans var Björn bóndi að Loftsölum í M...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sigbjörn Björnsson múrari á Ekru, fæddist 8. september 1876 að Loftsölum í Mýrdal og lést 21. maí 1962.
Faðir hans var Björn bóndi að Loftsölum í Mýrdal, f. 12. október 1832, d. 26. júní 1900, Björnsson bónda á Rofunum þar, f. 1798 í Kerlingardal þar, Árnasonar bónda í Rofunum, f. 1766, d. 26. júní 1840, Ásbjörnssonar bónda í Kerlingardal Jónssonar.
Móðir Björns bónda á Rofunum og seinni kona Árna Ásbjörnssonar var Arnbjörg húsfreyja, f. 1766, d. 11. ágúst 1843 í Reynisholti, Björnsdóttir.
Móðir Björns á Loftsölum og kona Björns á Rofunum var Guðfinna húsfreyja, f. 23. október 1807 í Skammadal í Mýrdal, d. 28. nóvember 1887 í Fagradal þar, Bjarnadóttir frá Kálfholti í Holtum í Rang., bónda á Reyni í Mýrdal, f. um 1767, Þórðarsonar prests í Kálfholti Sveinssonar og konu séra Þórðar, Guðfinnu Þorsteinsdóttur.
Móðir Guðfinnu húsfreyju á Rofunum og kona Bjarna á Reyni var Soffía húsfreyja frá Breiðabólsstað á Skógarströnd, f. 1776, d. 11. september 1861, Árnadóttir prests, þá á Breiðabólsstað á Skógarströnd, síðar í Holti undir Eyjafjöllum, f. 1732, d. 25. mars 1805, Sigurðssonar, og konu sr. Árna, Kristínar húsfreyju, f. 1743, d. 8. mars 1791, Jakobsdóttur.

Móðir Bjarna í Túni og kona Björns á Loftsölum (1866) var Elín húsfreyja, f. 13. júlí 1830 á Brekkum í Mýrdal, d. 18. febrúar 1908 á Loftsölum, Þórðardóttir bónda á Brekkum, f. 6. janúar 1798 á Brekkum, d. 16. maí 1862 þar, Ólafssonar bónda, síðast á Brekkum, f. 1759, d. 19. febrúar 1823 „í útveri suður á Leiru“ í Gullbr.s., Guðmundssonar, og barnsmóður Ólafs, Ingveldar húsfreyju á Fossi í Mýrdal, f. 1763 á Brekkum, Árnadóttur.
Móðir Elínar og fyrri kona Þórðar á Brekkum var Elín húsfreyja, f. 14. nóvember 1793 á Brekkum, d. 10. apríl 1846 þar, Jónsdóttir bónda á Brekkum, f. 1764, d. 30. október 1835 á Brekkum, Jónssonar og fyrri konu Jóns á Brekkum, Solveigar húsfreyju, f. 1764, Pálsdóttur.

Sigbjörn og Bjarni Björnsson í Túni voru albræður.

Kona Sigbjörns, (1904), var Þóranna Guðrún Jónsdóttir húsfreyja, f. 28. maí 1887, d. 9. júní 1920.
Börn Sigbjörns og konu hans Þórönnu:
1. Jón, f. 8. apríl 1907, drukknaði 1. mars 1942. Hann fórst með Þuríði formanni VE-233.
2. Elínborg, f. 3. september 1911, d. 11. ágúst 1995.
3. Þórarinn, f. 18. janúar 1914, d. 7. desember 1992.
4. Barn Sigbjörns með Kristínu Magnúsínu Pétursdóttur, f. 6. ágúst 1879, d. 10. október 1924, systur Jóns Péturssonar í Þorlaugargerði:
Guðfinna Sigbjörnsdóttir, f. 15. nóvember 1903, d. 1. maí 1967.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka Árna Árnasonar símritara frá Grund. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
  • Íslensk skip. Jón Björnsson. Iðunn 1990.
  • Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1976.
  • Minningarrit. Páll Oddgeirsson. Vestmannaeyjum 1952.
  • Garður.is.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is