Eyjólfur Gíslason (Bessastöðum)
Eyjólfur Gíslason fæddist 22. maí 1897 að Búastöðum í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Gísli Eyjólfsson frá Kirkjubæ og Guðrún Magnúsdóttir úr Landeyjum.
Fyrri kona Eyjólfs var Margrét Runólfsdóttir og eignuðust þau soninn Erlend, fæddan 1919. Seinni kona Eyjólfs var Guðrún Brandsdóttir og áttu þau þrjú börn; Sigurlínu (lést sem ungt barn), Gísla og Guðjón Ármann.
Sjómennska
Eyjólfur var alls í 40 vertíðir sem formaður á bátum. Hann hóf ferilinn á mótorbátnum Unni árið 1919 og eftir það var hann formaður á fjölmörgum bátum. Lengst var hann á Emmu VE-219, 9 ár, en meðal annars var hann á Glaði og Hansínu. Fyrir seinni heimsstyrjöldina var hann í nokkur ár á færeyskum stórskútum. Formennsku sína endaði hann á Ísleifi, gamla, VE-63 árið 1962.
Fræðistörf
Líf eftir gos
Heimildir
- Jón Bryngeirsson. Eyjólfur Gíslason, minningargrein. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1996. bls. 82-84.