Goðasteinn
Húsið Goðasteinn stendur við Kirkjubæjarbraut 11. Þorsteinn Víglundsson skólastjóri og sparisjóðsstjóri byggði húsið og bjó þar og fór kennsla í netabætingum, tóvinnu og meðferð véla m.a. fram í kjallara hússins. Það var dæmt ónýtt eftir gos vegna hitaskemmda. Árið 2006 bjuggu Vilborg Sigurðardóttir og Gísli Guðnason í húsinu.
Heimildir
- Guðjón Ármann Eyjólfsson. Minningargrein. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1991. bls. 111.