Sigurður Ólafur Steingrímsson
Sigurður Ólafur Steingrímsson, sjómaður, stýrimaður fæddist 28. október 1962.
Foreldrar hans Steingrímur Dalmann Sigurðsson, skipstjóri, f. 4. janúar 1942, d. 19. maí 2017, og kona hans Guðlaug Ólafsdóttir, húsfreyja, f. 2. desember 1942.
Þau Ingunn Björk giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau skildu.
I. Fyrrum kona Sigurðar Ólafs er Ingunn Björk Sigurðardóttir Bjartmars, húsfreyja, starfsmaður á Sjúkrahúsini, f. 5. desember 1961.
Barn þeirra:
1. Steingrímur Sigurðsson, f. 2. mars 1995.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Guðlaug.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
}
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.