Gylfi Rafn Gíslason

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. september 2024 kl. 13:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. september 2024 kl. 13:10 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Gylfi Rafn Gíslason''', vinnuvélastjóri fæddist 24. apríl 1970.<br> Foreldrar hans voru Gísli Valur Einarsson, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 20. janúar 1943 á Brekku, og kona hans Björg Guðjónsdóttir frá Norður-Gerði, húsfreyja, f. 8. janúar 1940. Börn Bjargar og Gísla:<br> 1. Guðjón Þór Gíslason bifvélavirki, f. 3. ágúst 1962. Fyrrum kona hans U...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Gylfi Rafn Gíslason, vinnuvélastjóri fæddist 24. apríl 1970.
Foreldrar hans voru Gísli Valur Einarsson, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 20. janúar 1943 á Brekku, og kona hans Björg Guðjónsdóttir frá Norður-Gerði, húsfreyja, f. 8. janúar 1940.

Börn Bjargar og Gísla:
1. Guðjón Þór Gíslason bifvélavirki, f. 3. ágúst 1962. Fyrrum kona hans Guðrún Unnur Guðmundsdóttir.
2. Helga Dís Gísladóttir verslunarmaður, hótelstjóri, þerna, f. 12. janúar 1967. Fyrrum maður hennar Jarl Sigurgeirsson. Maður hennar Rafn Kristjánsson.
3. Gylfi Rafn Gíslason vinnuvélastjóri, f. 24. apríl 1970. Fyrrum sambúðarkona hans Elísabet Rut Sigmarsdóttir.

Þau Elísabet hófu sambúð, eignuðust þrjú börn. Þau skildu.
Gylfi býr við Brimhólabraut 6.

I. Fyrrum sambúðarkona Gylfa er Elísabet Rut Sigmarsdóttir, húsfreyja, f. 8. október 1982.
Börn þeirra:
1. Sigmar Valur Gylfason, f. 29. mars 2003.
2. Bryndís Rut Gylfadóttir, f. 11. ágúst 2005.
3. Lovísa Karen Gylfadóttir, f. 11. ágúst 2005.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.