Baldvin Elíasson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. ágúst 2024 kl. 17:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. ágúst 2024 kl. 17:26 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Baldvin Elíasson''', rekstrarstjóri hjá Endurvinnslunni fæddist 1. febrúar 1977 í Eyjum.<br> Foreldrar hennar voru Elías Baldvinsson frá Steinholti við Kirkjuveg 9a, slökkviliðsstjóri, f. 1. júní 1938, d. 16. september 2003, og kona hans Halla Guðmundsdóttir frá Presthúsum, húsfreyja, f. 4. desember 1939, d. 8. ágúst 2020. Börn Höllu og Elíasar:<br> 1. Þórunn Lind Elíasdóttir húsfreyj...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Baldvin Elíasson, rekstrarstjóri hjá Endurvinnslunni fæddist 1. febrúar 1977 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Elías Baldvinsson frá Steinholti við Kirkjuveg 9a, slökkviliðsstjóri, f. 1. júní 1938, d. 16. september 2003, og kona hans Halla Guðmundsdóttir frá Presthúsum, húsfreyja, f. 4. desember 1939, d. 8. ágúst 2020.

Börn Höllu og Elíasar:
1. Þórunn Lind Elíasdóttir húsfreyja, f. 13. júní 1957 á Sj. Fyrrum maður hennar Sigurður Einarsson, látinn.
2. Unnur Lilja Elíasdóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Búðardal, f. 31. janúar 1959 á Sj. Maður hennar Gunnólfur Lárusson.
3. Kristín Elfa Elíasdóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Eyjum, f. 25. júní 1960 að Presthúsum. Maður hennar Sigurjón Hinrik Adolfsson.
4. Guðmundur Elíasson verkfræðingur í Mosfellsbæ, veitustjóri í Hafnarfirði, f. 13. mars 1962 í Presthúsum. Barnsmóðir hans Magnea Richardsdóttir. Fyrrum kona hans Sæunn Erna Sævarsdóttir. Kona hans Hólmfríður Ólafsdóttir.
5. Sigrún Elíasdóttir húsfreyja, markaðsfulltrúi í Reykjavík, f. 1. mars 1964. Maður hennar Logi Friðriksson.
6. Eygló Elíasdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 20. júlí 1968. Maður hennar Viðar Sigurjónsson.
7. Elísa Elíasdóttir húsfreyja, bókavörður í Eyjum, f. 3. ágúst 1971. Maður hennar Magnús Benónýsson.
8. Baldvin Elíasson rekstrarstjóri, f. 1. febrúar 1977. Kona hans Íris Davíðsdóttir.

Þau Íris giftu sig 2003, eignuðust tvö börn. Þau búa í Rvk.

I. Kona Baldvins, (6. september 2003), er Íris Davíðsdóttir, húsfreyja, rekstrarstjóri, f. 7. júlí 1981. Foreldrar hennar Davíð Hermannsson, f. 19. desember 1961, og Ólafía Guðmundsdóttir, f. 8. september 1962.
Börn þeirra:
1. Elías Baldvinsson, f. 19. júlí 2005 í Rvk.
2. Davíð Baldvinsson, f. 27. september 2010 í Rvk.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.