Sigrún Elíasdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sigrún Elíasdóttir, húsfreyja, markaðsfulltrúi í Rvk fæddist 1. mars 1964 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Elías Baldvinsson frá Steinholti við Kirkjuveg 9a, slökkviliðsstjóri, f. 1. júní 1938, d. 16. september 2003, og kona hans Halla Guðmundsdóttir frá Presthúsum, húsfreyja, f. 4. desember 1939, d. 8. ágúst 2020.

Börn Höllu og Elíasar:
1. Þórunn Lind Elíasdóttir húsfreyja, f. 13. júní 1957 á Sj. Fyrrum maður hennar Sigurður Einarsson, látinn.
2. Unnur Lilja Elíasdóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Búðardal, f. 31. janúar 1959 á Sj. Maður hennar Gunnólfur Lárusson.
3. Kristín Elfa Elíasdóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Eyjum, f. 25. júní 1960 að Presthúsum. Maður hennar Sigurjón Hinrik Adolfsson.
4. Guðmundur Elíasson verkfræðingur í Mosfellsbæ, veitustjóri í Hafnarfirði, f. 13. mars 1962 í Presthúsum. Barnsmóðir hans Magnea Richardsdóttir. Fyrrum kona hans Sæunn Erna Sævarsdóttir. Kona hans Hólmfríður Ólafsdóttir.
5. Sigrún Elíasdóttir húsfreyja, markaðsfulltrúi í Reykjavík, f. 1. mars 1964. Maður hennar Logi Friðriksson.
6. Eygló Elíasdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 20. júlí 1968. Maður hennar Viðar Sigurjónsson.
7. Elísa Elíasdóttir húsfreyja, bókavörður í Eyjum, f. 3. ágúst 1971. Maður hennar Magnús Benónýsson.
8. Baldvin Elíasson deildarstjóri, f. 1. febrúar 1977. Kona hans Íris Davíðsdóttir.

Þau Logi giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu í Rvk.

I. Maður Sigrúnar er Logi Friðriksson, tæknifræðingur, f. 2. febrúar 1962. Foreldrar hans Friðrik Kristjánsson, rafvirki og rafverktaki f. 26. október 1932, d. 24. febrúar 2015, og kona hans Auður Sigurðardóttir, húsfreyja, f. 20. október 1933, d. 12. apríl 2014.
Börn þeirra:
1. Friðrik Máni Logason, f. 11. febrúar 1987 í Danmörku.
2. Halla Logadóttir, f. 1. október 1988 í Rvk.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.