Bragi Einarsson (kennari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. ágúst 2023 kl. 13:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. ágúst 2023 kl. 13:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Bragi Einarsson (Hásteinsvegi)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Bragi Einarsson framhaldskólakennari í Keflavík fæddist 6. júní 1960 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Einar Sigurfinnsson afgreiðslumaður, f. 12. febrúar 1940, og kona hans Margrét Bragadóttir húsfreyja, f. 22. maí 1942, d. 13. nóvember 2018.

Bragi var með foreldrum sínum, á Hásteinsvegi 55 1960, flutti með móður sinni í Garð í Gull. 1961.
Hann var nemi í Myndlista- og handíðaskóla Íslands, lauk námi 1988, lauk kennaraprófi 2007.
Bragi er kennari í myndlist og upplýsingatækni í Fjölbrautarskóla Suðurnesja síðan 2002.

I. Kona Braga er Guðrún Filippía Stefánsdóttir kennari f. 1. desember 1960 í Reykjavík. Foreldrar hennar Stefán Sigbjörnsson sjómaður, f. 16. mars 1924, d. 27. mars 2009, og kona hans Hanna Ágústa Ágústsdóttir, f. 27. apríl 1931, d. 17. október 2005.
Börn þeirra:
1. Steinunn Björk Bragadóttir blaðamaður, f. 13. mars 1986.
2. Stefán Arnar Bragason smiður, kvikmyndatæknir, f. 14. maí 1990.
3. Einar Ágúst Bragason flutningabílstjóri, f. 16. nóvember 1992.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.