Hörður Róbert Eyvindsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. júní 2023 kl. 10:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. júní 2023 kl. 10:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Hörður Róbert Eyvindsson''' frá Seyðisfirði, verkamaður, sjómaður fæddist 31. desember 1944 og lést 19. júní 1994.<br> Foreldrar hans voru Emil Torshamar, f. 21. október 1920, d. 19. september 1976 og kona hans Jórunn Emilsdóttir Torshamar húsfreyja, f. 21. janúar 1919, d. 18. júlí 1997. Hörður var með foreldrum sínum.<br> Hann flutti til Eyja, stundaði sjómennsku og verkamannastörf. <br> Þau Guðrún giftu sig 1976, eignuðust tvö börn og Hör...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Hörður Róbert Eyvindsson frá Seyðisfirði, verkamaður, sjómaður fæddist 31. desember 1944 og lést 19. júní 1994.
Foreldrar hans voru Emil Torshamar, f. 21. október 1920, d. 19. september 1976 og kona hans Jórunn Emilsdóttir Torshamar húsfreyja, f. 21. janúar 1919, d. 18. júlí 1997.

Hörður var með foreldrum sínum.
Hann flutti til Eyja, stundaði sjómennsku og verkamannastörf.
Þau Guðrún giftu sig 1976, eignuðust tvö börn og Hörður Róbert fóstraði tvö börn Guðrúnar. Þau bjuggu í Nýju-Klöpp við Faxastíg 11.
Guðrún lést 1993 og Hörður Róbert 1994.

I. Kona Harðar Róberts, (18. maí 1976), var Guðrún Víglundsdóttir frá Akureyri, húsfreyja, fiskiðnaðarkona, f. 11. mars 1950, d. 17. október 1993.
Börn þeirra:
1. Helena Ósk Harðardóttir húsfreyja, rekur fyrirtækið Epoxyverk með manni sínum. Hún annast bókhaldið, f. 25. desember 1977. Maður hennar Karl Dan Viðarsson.
2. Birgitta Íris Harðardóttir fiskiðnaðarkona, f. 24. febrúar 1981, d. 25. ágúst 2003.
Börn Guðrúnar og fósturbörn Harðar Róberts:
3. Vilhjálmur Bergsteinsson sjómaður, rekur dekkjaverkstæði, f. 21. ágúst 1968. Kona hans er Sigurlaug Harðardóttir.
4. Jóhann Freyr Frímannsson sjómaður, öryrki, f. 27. maí 1971. Sambúðarkona hans Bergþóra Guðmundsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.