Jósefína Sigurðardóttir (Sólvangi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 29. september 2022 kl. 14:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 29. september 2022 kl. 14:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|200px|''Jósefína Sigurðardóttir. '''Jósefína Sigurðardóttir''' húsfreyja, vökukona, verkakona fæddist á Dönustöðum í Laxárdal, Dal. 19. apríl 1892 og lést 25. nóvember 1971 í Reykjavík.<br> Foreldrar hennar voru Sigurður Jónsson húsmaður, bóndi á Skarfsstöðum, á Kjarlaksvöllum, á Skerðingsstöðum í Dalasýslu, hjá Jósefínu dóttur sinni á Glæsivöllum í Miðdölum 1920, og Hólmfríður Gu...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Jósefína Sigurðardóttir.

Jósefína Sigurðardóttir húsfreyja, vökukona, verkakona fæddist á Dönustöðum í Laxárdal, Dal. 19. apríl 1892 og lést 25. nóvember 1971 í Reykjavík.
Foreldrar hennar voru Sigurður Jónsson húsmaður, bóndi á Skarfsstöðum, á Kjarlaksvöllum, á Skerðingsstöðum í Dalasýslu, hjá Jósefínu dóttur sinni á Glæsivöllum í Miðdölum 1920, og Hólmfríður Guðmundsdóttir húskona í Ásgarði, Dal. 1890, húsfreyja á Skarfsstöðum, á Kjarlaksvöllum, á Skerðingsstöðum í Dalasýslu, móðir húsfreyju á Glæsivöllum í Miðdölum 1920, f. 14. maí 1853, d. 2. mars 1929.

Jósefína var með foreldrum sínum fyrstu ár sín, en var í fóstri um skeið frá 7 ára aldri að Skálavík í Mjóafirði við Djúp, var hjá Sigurbirni bróður sínum í Reykjavík 1910, kennaraskólanemi. Hún hætti kennaranámi e. eitt ár.
Þau Helgi giftu sig 1913, eignuðust fimm börn. Þau voru bændur á Jarðlangsstöðum í Borgarhreppi, Mýr. 1913-1915, húsfólk á Vatni í Haukadal 1918, bændur á Glæsivöllum í Miðdölum, Dal. 1919-1922.
Þau fluttu til Eyja 1922, bjuggu á Sólvangi.
Helgi vann á netaverkstæði, varð sjúklingur og lést 1943.
Jósefína var húsfreyja og vann við fiskiðnað. Hún var vökukona á Sjúkrahúsinu.
Hún flutti til Reykjavíkur og lést 1971.

I. Maður Jósefínu, (1913), var Helgi Bjarni Jónsson bóndi, verkamaður, f. 27. febrúar 1881, d. 13. janúar 1943.
Börn þeirra:
1. Guðrún Helgadóttir hjúkrunarfræðingur í Eyjum og Hveragerði, f. 11. júní 1914, d. 14. júní 2000. Maður hennar Ársæll Karlsson vélstjóri.
2. Kristín Helgadóttir húsfreyja, f. 6. nóvember 1918, d. 10. júní 2005. Maður hennar Haraldur Sigurðsson vélstjóri.
3. Hólmfríður Helgadóttir húsfreyja, verkakona í Reykjavík, f. 7. mars 1921, d. 8. september 2009. Maður hennar Kristján Fr. Kristjánsson verslunarmaður.
4. Halldóra Helgadóttir lyfjatæknir, verslunarmaður, f. 16. ágúst 1922, d. 1. maí 1993.Barnsfaðir hennar Haraldur Steingrímsson rafvirki.
5. Þrúður Helgadóttir húsfreyja á Hellu, Rang., f. 26. júlí 1925, d. 18. nóvember 2005. Maður hennar Óskar Þorsteinn Einarsson húsasmiður.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Borgfirzkar æviskrár. Margir höfundar. Sögufélag Borgarfjarðar 1969-2007.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.