Magnúsína Sæmundsdóttir (Oddhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. mars 2019 kl. 17:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. mars 2019 kl. 17:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Magnúsína Sigríður Sæmundsdóttir''' frá Oddhól, húsfreyja, verslunarkona, talsímakona, síðar á Hvammstanga fæddist 5. ágúst 1934 á Miðhúsum.<br>...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Magnúsína Sigríður Sæmundsdóttir frá Oddhól, húsfreyja, verslunarkona, talsímakona, síðar á Hvammstanga fæddist 5. ágúst 1934 á Miðhúsum.
Foreldrar hennar voru Sæmundur Jónsson verkamaður, f. 27. apríl 1902, d. 12. október 1943, og kona hans Sigurbjörg Magnúsdóttir frá Dyrhólum í Mýrdal, húsfreyja, f. 30. ágúst 1905, d. 25. júní 1996.

Bróðir Magnúsínu er
1. Sæmundur Sigurbjörn Sæmundsson bifvélavirki, nú á Selfossi, f. 11. júní 1943 í Oddhól.

Magnúsína var með foreldrum sínum í bernsku, en faðir hennar dó, er hún var níu ára.
Hún var með móður sinni, var verslunarkona og um skeið talsímakona.
Þau Friðrik giftu sig 1959, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu um skeið á Svalbarði, en síðan í Oddhól til Goss.
Þau fluttust á Hvammstanga eftir Gos og bjuggu þar.
Friðrik Jón lést 2000. Magnúsína býr á Hvammstanga.

I. Maður Magnúsínu Sigríðar, (24. desember 1959), var Friðrik Jón Friðriksson frá Sauðárkróki, útgerðarmaður, skipstjóri, f. 30. nóvember 1936, d. 8. október 2000.
Börn þeirra:
1. Sigurbjörg Friðriksdóttir að Lækjarmel 10 í Hvalfjarðarsveit, húsfreyja, tannfræðingur, leikskólastjóri í Hvalfjarðarsveit, f. 1. júlí 1959. Maður hennar er Skúli Þórðarson.
2. Rósa Fanney Friðriksdóttir húsfreyja, skrifstofumaður á Hvammstanga, f. 13. janúar 1962. Maður hennar er Guðmann Jóhannesson.
3. Erna Friðriksdóttir húsfreyja, starfsmaður Hótel Hvammstanga, f. 29. febrúar 1964. Maður hennar er Bjarki Haraldsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.