Haraldur Sæmundsson (Búastaðabraut)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. mars 2019 kl. 20:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. mars 2019 kl. 20:25 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Haraldur Sæmundsson''' frá Búastaðabraut 3, rafeindafræðingur, tölvunarfræðingur hjá Marel fæddist 13. september 1966 í Reykjavík.<br> Foreldrar ha...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Haraldur Sæmundsson frá Búastaðabraut 3, rafeindafræðingur, tölvunarfræðingur hjá Marel fæddist 13. september 1966 í Reykjavík.
Foreldrar hans eru Sæmundur Sigurbjörn Sæmundsson frá Oddhól, bifvélavirki, þungavinnuvélstjóri, bifreiðastjóri, bæjarstarfsmaður, f. 11. júní 1943, og kona hans Fríður Alfreðsdóttir húsfreyja, f. 16. ágúst 1942, d. 1. maí 1974.

Haraldur var með foreldrum sínum í frumbernsku, en móðir hans lést er hann var á áttunda árinu.
Hann var með föður sínum og Önnu Margréti síðari konu hans.
Haraldur lærði rafeindavirkjun og síðan tölvunarfræði og vinnur hjá Marel í Reykjavík.

I. Sambýliskona Haraldar er Anda Mihalas, af rúmensku kyni.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.


  • Haraldur.